Allhvöss norðanátt og snjókoma eða él víða á landinu Atli Ísleifsson skrifar 29. desember 2021 07:09 Gert er ráð fyrir frosti núll til fjórum stigum. Kólnar svo í kvöld. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir norðan- og norðaustanátt í dag og að strekkingur eða allhvass verði algengur vindstyrkur. Jafnvel megi reikna með að það verði hvassara á stöku stað í vindstrengjum sunnan- og vestanlands. Nú í morgunsárið sé snjókoma eða él nokkuð víða á landinu.
Á vef Veðurstofunnar segir að ferðalangar séu hvattir til að athuga aðstæður á vegum áður en lagt sé af stað, sérstaklega ef förinni er heitið yfir fjallvegi. „Síðdegis má búast við lítilsháttar éljum á Norður- og Austurlandi, en þá ætti að stytta upp og létta til vestanlands og einnig sunnanlands. Frost 0 til 4 stig í dag, en kólnar í kvöld. Á morgun er spáð minni vindi en í dag, útlit er fyrir norðaustan kalda eða strekking. Bætir í ofankomu um tíma norðan- og austanlands, en sunnan heiða er léttskýjaður dagur í vændum. Frost 1 til 7 stig.“ Spákortið fyrir hádegið í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Norðaustan 8-15 m/s og snjókoma eða él norðan- og austanlands, en léttskýjað sunnan heiða. Frost 0 til 6 stig. Á föstudag (gamlársdagur): Austan 3-10, en 10-15 syðst á landinu. Víða þurrt og bjart veður, en stöku él með austur- og suðurströndinni. Hiti frá frostmarki syðst, niður í 12 stiga frost í innsveitum fyrir norðan. Á laugardag (nýársdagur): Gengur í norðaustan storm með snjókomu eða slyddu, en síðar rigningu syðst á landinu. Hlýnandi veður í bili. Á sunnudag: Hvöss norðanátt með snjókomu eða éljum, en þurrt að kalla suðvestantil á landinu. Frost 3 til 8 stig. Á mánudag: Minnkandi norðanátt. Dregur úr ofankomu á Norður- og Austurlandi, en léttskýjað sunnan- og vestanlands. Áfram kalt í veðri. Á þriðjudag: Vaxandi suðaustanátt og þykknar upp með úrkomu um landið sunnan- og vestanvert. Þurrt og kalt veður á Norður- og Austurlandi.
Veður Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Sjá meira