Lífið

Hálfgerð jafningjafræðsla fyrir feður

Elísabet Hanna Maríudóttir skrifar
Árni Kristjánsson er fyrst og fremst pabbi og vill hjálpa öðrum að finna sig í hlutverkinu.
Árni Kristjánsson er fyrst og fremst pabbi og vill hjálpa öðrum að finna sig í hlutverkinu. Aðsend

Feðrafræðsla verður haldin um helgina í aðdraganda Valentínusardagsins enda er ekkert rómantískara en að vera til staðar fyrir makann sinn eins og Árni Kristjánsson í hagsmunafélaginu Fyrstu fimm orðaði það. Félagið, ásamt Jógasetrinu, stendur fyrir fræðslunni Finndu þig í föðurhlutverkinu sem verður haldin næstkomandi sunnudagskvöld.

Meðgöngujóga fyrir feður

Auður Bjarnadóttir rekur Jógasetrið í Skipholtinu og hefur boðið upp á meðgöngujóga í yfir tuttugu ár fyrir verðandi mæður sem blandar saman fræðslu og jógaiðkun. Þetta er þó í fyrsta sinn sem kvöldnámskeið er tileinkað feðrum. Leiðbeinendur kvöldsins eru sjálfir pabbar sem tengjast hagsmunafélaginu Fyrstu fimm sem berst fyrir því að gera Ísland að barn- og fjölskylduvænna samfélagi.

“Þetta er hálfgerð jafningjafræðsla”

segir Árni en sjálfir eru þeir allir feður sem hefðu viljað geta sótt slíkt námskeið áður en þeir tóku á móti sínum fyrstu börnum.

Fann fyrir vanþekkingu

„Ég fann fyrir mjög mikilli vanþekkingu þegar ég eignaðist mitt fyrsta barn. Hjá mér eins og öðrum í kringum mig var maður að læra af því að reka sig á og vera að gera sitt besta. Þannig að ég var klárlega nemandinn sem við viljum fræða á þessu námskeiði,“

bætti Árni við. Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir það hvernig er hægt að takast á við og halda niðri streitu og bregðast við þörfum barnsins og makans.

Allir velkomnir

Það geta allir skráð sig á viðburðinn hjá Jógasetrinu og eru þeir Ólafur Grétar Gunnarsson, Matthías Ólafsson, Gunnar Már Hauksson og Árni Kristjánsson umsjónarmenn kvöldsins. Þeir þekktust ekkert fyrr en föðurhlutverkið og reynsla þeirra af því sameinaði þá. Einn þeirra er fagmaður í pararáðgjöf og sjálfur er Árni jógakennari svo fagleg reynsla er líka til staðar.

Sjálfur tók Árni langt fæðingarorlof með yngra barninu sínu og segir það hafa verið eitt besta ár lífs síns. 

„Ef ég get leitt þá gleði áfram að þá er ég ánægður með kvöldið“ segir Árni sem er spenntur að hitta aðra feður, miðla visku sinni og eiga góða kvöldstund.


Tengdar fréttir

„Notaðu þennan tíma til að tengjast barninu“

Björn Grétar Baldursson trúði því að hann gæti ekki gert mikið gagn fyrstu mánuðina í föðurhlutverkinu. Í dag segist hann vita að það sé kjaftæði og hvetur foreldra í þeirri stöðu til að nýta öll tækifæri til tengslamyndunar.

Hugsið vel um konuna ykkar, bæði fyrir og eftir fæðingu

„Það voru sumir sem voru hissa að ég hafi tekið þrjá mánuði í fæðingarorlof. Einnig heyrði maður suma tala um að pabbarnir væru ekki í stóru hlutverki fyrstu mánuðina, ég upplifði það alls ekki þannig,“ segir Þorgeir Logason í viðtalsliðnum Föðurland.

Draumurinn að verða heimavinnandi húsfaðir

Björgvin Páll Gústavsson segir frá erfiðri barnæsku og glímu við kvíða og vanlíðan á fullorðinsárum í nýrri bók, Án filters. Í einlægu viðtali segir hann frá því hvers vegna hann ákvað að gera upp líf sitt og hvert hann stefnir. Honum finnst föðurhlutverkið mjög mikilvægt og í lok ferils síns á hann sér þann draum að verða heimavinnandi húsfaðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.