Lægð fer norðaustur yfir landið Atli Ísleifsson skrifar 28. febrúar 2022 07:39 Það dregur smám saman úr vindi og úrkomu í dag. Vísir/Vilhelm Febrúarmánuður endar með nokkrum gulum viðvörunum, en lægð fer norðaustur yfir landið í dag. Hvasst verður á landinu norðvestanverðu með éljum og lélegu skyggni en hægari vindur í öðrum landshlutum.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að rigning eða slydda verði fyrir austan, en annars dálítil él. „Dregur smám saman úr vindi og úrkomu í dag, en hvessir fyrir austan í kvöld þegar lægðin fjarlægist landið. Norðvestan hvassviðri eða stormur um landið austanvert í nótt og í fyrramálið, en mun hægari vindur um landið vestanvert. Víða él, einkum norðantil á landinu. Lægir og styttir upp þegar líður á morgundaginn, en strax annað kvöld fer vindur að vaxa úr austri þegar næsta kerfi nálgast landið úr suðvestri.“ Gular viðvaranir: Faxaflói, norðaustan stormur og hríð. 28. febrúar kl 7-11. Breiðafjörður, norðaustan hvassviðri eða stormur og él, 28. febrúar 5-14. Vestfirðir, norðaustan hvassviðri eða stormur og hríð, 28. febrúar 6-16. Strandir og Norðurland vestra, norðaustan hvassviðri eða stormur og hríð, 28. febrúar 5-14. Spákortið fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Minnkandi norðvestanátt og éljagangur um landið norðanvert, en annars úrkomuminna. Hæglætisveður síðdegis og él á stöku stað, en vaxandi suðaustanátt suðvestantil um kvöldið. Kólnar í veðri, frost allt að 10 stig norðaustantil en frostlaust við suðurströndina. Á miðvikudag: Gengur í suðaustan 13-20 m/s með rigningu eða slyddu en heldur hægari og þurrt norðanlands. Dregur úr vindi seinnipartinn. Hlýnandi veður, hiti 0 til 6 stig síðdegis. Á fimmtudag og föstudag: Suðvestan 5-13 m/s og él en lengst af úrkomulítið norðan og austanlands. Hiti kringum frostmark en frost 0 til 6 stig á föstudag. Á laugardag: Vaxandi suðaustanátt með slyddu eða rigingu en suðvestanátt og snjókomu eða él og kólnandi veður um kvöldið. Yfirleitt þurrt norðaustantil. Á sunnudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt og stöku él sunnan- og vestanlands, annars þurrt og bjart. Vægt frost víða.
Veður Mest lesið Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Erlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira