Rúmlega fimmtán hundruð sérfræðingar frá þróunarríkjum útskrifaðir frá GRÓ skólunum Heimsljós 2. mars 2022 09:25 Tuttugu og sjö sérfræðingar á sviði sjávarútvegs- og fiskimála, frá sextán löndum í Afríku, Asíu, Eyjaálfu og Mið-Ameríku, útskrifuðust frá Sjávarútvegsskóla GRÓ í gær. Eftir útskriftina hefur heildarfjöldi útskrifaðra sérfræðinga frá skólunum fjórum sem starfa á vegum GRÓ Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu farið yfir fimmtán hundruð manna markið, en alls er fjöldinn 1.513. Enn fremur hafa 95 lokið meistaranámi og átján doktorsnámi við íslenska háskóla með stuðningi GRÓ skólanna. Þá hefur GRÓ einnig haldið fjölmörg styttri námskeið í samstarfslöndum sínum sem rúmlega þrjú þúsund manns hafa sótt. Hópurinn sem útskrifaðist úr Sjávarútvegsskóla GRÓ í gær er 23. árgangur skólans frá upphafi, en skólinn tók til starfa árið 1998. Ellefu útskriftarnemendur sérhæfðu sig á sviði stefnumótunar og stjórnunar, sex á sviði matvælaframleiðslu og gæðastjórnunar, sex á sviði stofnmats og fjórir á sviði sjálfbærs fiskeldis. Frá upphafi hafa alls 442 sérfræðingar lokið námi frá Sjávarútvegsskóla GRÓ frá yfir 60 samstarfslöndum. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra flutti ávarp við útskriftina, en Sjávarútvegsskóli GRÓ er hýstur hjá Hafrannsóknarstofnun Íslands. „Menntun, á borð við þessa, hjálpar okkur í því eilífðar verkefni að bæta heiminn. Það er mjög mikilvægt að við deilum þekkingu okkar og rannsóknum með það að markmiði að gera betur. Jafnvel þótt heimsins höf aðskilji okkur, er svo margt sem við getum gert saman og nú þegar loftslagsvá vofir yfir, þá einfaldlega verðum við. Ég óska nemendum, og okkur öllum, til hamingju með daginn.“ GRÓ er sjálfstæð miðstöð sem starfar undir merkjum UNESCO, Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna. GRÓ tók til starfa, sem sérstök eining innan utanríkisráðuneytisins, 1. janúar 2020. GRÓ skólarnir fjórir, Jarðhitaskólinn, Sjávarútvegsskólinn, Landgræðsluskólinn og Jafnréttisskólinn, hafa starfað um áratugaskeið og frá upphafi verið ein af meginstoðum í alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands. Allir vinna þeir að því að efla getu stofnana og einstaklinga í þróunarríkjunum á sviðum þar sem Ísland býr yfir sérþekkingu. Hér fyrir neðan má sjá viðtöl við tvo útskriftarnemendur: Sjá frekari upplýsingar á vefsíðunni: www.grocentre.is. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Sjávarútvegur Mest lesið Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent Aftur brotist inn í Húrra Reykjavík Innlent „Áratuga afturför“ og frost í greininni Innlent Vísar gagnrýni á bug og gefur lítið fyrir rök lækna Innlent „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Innlent „Svo fær maður svona helvíti á fyrsta opnunardegi“ Innlent Leggja til að stakt veggjald yfir nýja Ölfusárbrú verði 495 krónur Innlent Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Erlent Segir uppspuna að Mogginn sé að hætta að koma út á prenti Innlent „Mjög, mjög sorglegt“ Erlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Sjávarútvegur Mest lesið Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent Aftur brotist inn í Húrra Reykjavík Innlent „Áratuga afturför“ og frost í greininni Innlent Vísar gagnrýni á bug og gefur lítið fyrir rök lækna Innlent „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Innlent „Svo fær maður svona helvíti á fyrsta opnunardegi“ Innlent Leggja til að stakt veggjald yfir nýja Ölfusárbrú verði 495 krónur Innlent Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Erlent Segir uppspuna að Mogginn sé að hætta að koma út á prenti Innlent „Mjög, mjög sorglegt“ Erlent