Hvassast vestantil og éljagangur á Norður- og Austurlandi Atli Ísleifsson skrifar 4. apríl 2022 07:08 Næstu daga verður norðaustanáttin allsráðandi með áframhaldandi éljum um norðanvert landið en syðra mun létta til. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir norðaustanátt á landinu í dag, yfirleitt átta til fimmtán metrar á sekúndu, þar sem hvassast verður við Breiðafjörð og á sunnanverðu Snæfellsnesi.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að norðan- og austanlands verði éljagangur en á Suðurlandi hangi lítið lægðardrag með dálítilli rigningu eða slyddu. Kólnandi veður, frost núll til níu stig seint í kvöld. „Næstu daga verður norðaustanáttin allsráðandi með áframhaldandi éljum um norðanvert landið en syðra mun létta til.“ Spákortið fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Norðaustan 8-15 m/s og él, en þurrt að kalla og birtir til er líður á daginn sunnantil. Frost 0 til 7 stig. Á miðvikudag: Norðaustan 5-13 m/s, él og frost 2 til 8 stig, en léttskýjað og hiti í kringum frostmark sunnantil. Á fimmtudag og föstudag: Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt og þurrt og bjart að mestu, en skýjað og dálítil él um landið austanvert. Áfram kalt í veðri og talsvert næturfrost inn til landsins. Á laugardag og sunnudag: Útlit fyrir austlæga átt með snjókomu eða slyddu sunnantil, en að mestu skýjað og lengst af þurrt um norðanvert landið. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ Innlent „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Klukkan tifar og enn langt í land Erlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Fleiri fréttir Veðrið stjórnast af lægð á Grænlandshafi Hitinn nær upp í tíu stig Rólegheitaveður og smá skúrir Víða skúrir en hiti gæti skriðið yfir tólf stig Norðaustan strekkingur og rigning Hæg austlæg átt en skilabakki nálgast Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Logn í dag á undan storminum á morgun Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Gul viðvörun vegna austan stórhríðar annan í páskum Þungfært víða um land Kalt í veðri miðað við árstíma Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Þungbúið fyrir norðaustan en heiðskírt víða annars staðar Gular viðvaranir taka gildi í enn eitt skiptið Gular viðvaranir vegna storms í kvöld og á morgun Hæðarhryggur yfir landinu í dag og stormur í nótt Lægð með snjókomu fer hratt yfir landið Sjá meira