Viðskipti innlent

Bene­dikt ráðinn teymis­stjóri hjá Póstinum

Bjarki Sigurðsson skrifar
Benedikt hefur verið ráðinn sem teymisstjóri hjá Póstinum. Hann starfaði áður hjá Exmon Software.
Benedikt hefur verið ráðinn sem teymisstjóri hjá Póstinum. Hann starfaði áður hjá Exmon Software. Aðsend

Benedikt Þorgilsson hefur verið ráðinn sem teymisstjóri hugbúnaðarþróunar í upplýsingatæknideild hjá Póstinum, og hefur þegar hafið störf. Hann mun hafa yfirumsjón með hugbúnaðarteymi Póstsins og leiða verkefni sem tengjast ytri kerfum.

Benedikt hefur víðtæka þekkingu og reynslu af störfum innan hugbúnaðargeirans. Hann kemur til Póstsins frá fyrirtækinu Exmon Software þar sem hann starfaði sem hugbúnaðarsérfræðingur. Áður starfaði hann sem hugbúnaðarsérfræðingur hjá Póstinum og gegndi lykilhlutverki í framþróun á stafrænni vegferð fyrirtækisins. Benedikt er með B.Sc. prófi í tölvunarfræði.

„Það er mikill heiður að vera treyst fyrir þessu hlutverki á þeim spennandi tímum sem eru framundan hjá Póstinum. Fyrirtækið er búið að vera á fleygiferð í stafrænni umbreytingu og innleiðingu á nýjum tækni- og hugbúnaðarlausnum, en það eru alltaf tækifæri til að gera enn betur. Það liggja ótal mörg krefjandi og skemmtileg verkefni fyrir sem ég hlakka til að taka þátt í,“ segir Benedikt.

„Það er frábært að fá Benna aftur til liðs við Póstinn. Hann hefur mikla og sérhæfða reynslu og hefur þegar spilað stórt hlutverk á þessari vegferð okkar. Hann heldur áfram að gegna lykilhlutverki í komandi verkefnum. Það er ýmislegt á teikniborðinu hjá okkur sem verður spennandi að takast á við í samstarfi við Benna. Við erum alltaf að þróa og bæta þjónustuna okkar og eigum alveg fullt inni,“ segir Guðjón Ingi Ágústsson, forstöðumaður stafrænna lausna og upplýsingatækni hjá Póstinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×