Lægð veldur suðaustan strekkingi með rigningu Atli Ísleifsson skrifar 20. apríl 2022 07:16 Hiti á landinu verður á bilinu fimm til ellefu stig. Vísir/Vilhelm Lægð suðvestur af landinu veldur suðaustan strekkingi með rigningu sunnan- og vestanlands í dag. Þó má reikna með að fari að lægja seinnipartinn. Norðaustanlands verður hins vegar hægari og þurrt í dag.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Hiti á landinu verður á bilinu fimm til ellefu stig. „Austlæg átt á morgun, yfirleitt gola eða kaldi. Víða léttskýjað norðantil á landinu, en stöku skúrir syðra og einnig á Vesturlandi annað kvöld. Fremur hlýtt í veðri. Á föstudag og laugardag er útlit fyrir hæglætisveður, þurrt og víða bjart.“ Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag (sumardagurinn fyrsti): Austan og suðaustan 3-10 m/s. Skýjað með köflum um landið sunnanvert og við austurströndina og sums staðar dálítil væta, en víða þurrt og bjart norðanlands. Hiti 7 til 14 stig. Á föstudag: Suðaustan 3-10 og bjartviðri, en skýjað með köflum og úrkomulítið á Vesturlandi og líkur á þokulofti við austurströndina. Hiti breytist lítið. Á laugardag: Hæg breytileg átt og léttskýjað, en sums staðar skýjað við ströndina. Hiti 6 til 13 stig að deginum. Á sunnudag: Hæg norðlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum. Hiti 4 til 13 stig, svalast við norður- og austurströndina. Á mánudag og þriðjudag: Hæg breytileg átt og úrkomulítið, en dálítil væta á þriðjudag. Heldur kólnandi.
Veður Mest lesið Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Innlent Mikill meirihluti féll fyrir íslenskri gervigreindarmynd Innlent Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Innlent Hola í vegi tók fjóra bíla úr umferð á vanræktum vegkafla Innlent Blöskrar viðbrögðin eftir tilnefningu fyrir mistök Innlent Þór styrkti Kvennaathvarfið og fær að halda pútternum Innlent Jón Baldvin segir söguskýringu Dags af og frá: Samdi við Davíð um EES Innlent Komin með ógeð af því að hlusta á „hverja silkihúfuna á fætur annarri“ Innlent „Þessi umræða er rosalega niðurlægjandi“ Innlent Fjórir handteknir eftir alvarlega líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Gular veðurviðvaranir í kortunum Köldu lofti beint til landsins Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Ört dýpkandi lægð á leiðinni og appelsínugular viðvaranir Appelsínugul viðvörun á morgun Vara við stórhríð á Austurlandi Snjókoma víða en bjart sunnan heiða Væta sunnantil og töluverð hláka í höfuðborginni Hvetja fólk til að fara fyrr heim vegna veðurs Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu vegna snjókomu Snjókoma á höfuðborgarsvæði í dag og á morgun Úrkomusvæði með snjókomu fer yfir vesturhelming landsins Gular veðurviðvaranir á Austurlandi Snýst í norðanátt og snarpar hviður austantil Útlit fyrir lægðagang og umhleypinga Hvöss austanátt fylgir alldjúpri lægð í dag Gul veðurviðvörun á Suðausturlandi Hitinn að skríða yfir frostmark sunnan heiða Herðir á frosti í kvöld Él og snjókoma norðan- og austantil Snjókoman náði ekki yfir Hellisheiðina Útlit fyrir hríðarbyl á Suðurlandi Draga kalt heimskautaloft yfir landið næstu daga Vara við snörpum vindhviðum Köldu heimskautalofti enn beint til landsins Kaldri norðlægri átt beint til landsins Dálítil él norðan- og austantil en annars bjart að mestu Dregur úr vindi og kólnar í kvöld Vindasamt víða á landinu Áfram léttskýjað á Suðvesturhorninu Sjá meira