Austan strekkingur en víða þurrt og bjart Atli Ísleifsson skrifar 16. maí 2022 07:15 Stíf austanátt syðra á morgun og rigning með köflum, einkum suðaustanlands. Veðurstofan Veðurstofan spáir austan- og suðaustanátt í dag, strekkingi eða allhvössu syðst, en annars talsvert hægari vindur.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að víða verði þurrt og bjart veður, en skýjað og dálítil súld eða þokuloft um landið suðaustanvert. Hiti verður á bilinu tíu til átján stig, en fimm til tíu við austurströndina. „Stíf austanátt syðra á morgun og rigning með köflum, einkum suðaustanlands. Hægari vindur norðan heiða og að mestu þurrt, fremur hlýtt áfram. Á miðvikudag er síðan útlit fyrir austlæga eða breytilega átt með rigningu víða, fyrst austantil,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Austan 10-18 m/s, hvassast syðst en hægari vindur norðan heiða. Skýjað á landinu og rigning sunnantil, einkum á Suðausturlandi. Hiti 10 til 18 stig, en svalara við austurströndina. Á miðvikudag: Austlæg eða breytileg átt með rigningu, fyrst um landið austanvert. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast suðvestanlands. Á fimmtudag og föstudag: Austanátt og víða skúrir, hiti yfirleitt 8 til 15 stig. Á laugardag: Norðaustanátt, skýjað og súld eða dálítil rigning um um landið austanvert. Hiti 5 til 16 stig, hlýjast suðvestantil. Á sunnudag: Útlit fyrir milt veður og úrkomulítið.
Veður Mest lesið Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Erlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira