Auður I. Ottesen garðyrkjumeistari og útgefandi tímaritsins Sumarhúsið og garðurinn nýtir ýmsar villtar jurtir og blóm úr garðinum og úr móanum fyrir utan Selfoss til þess að búa til dýrindis rétti.
Auður hefur í gegnum árin komið fram í Íslandi í dag og sýnt áhorfendum ýmsar óhefðbundnar leiðir til ræktunar og skreytinga fyrir garðana og svalirnar en í gærkvöldi ræddi Vala Matt við Auði um jurtir og blóm sem hægt er að nýta í eldhúsinu.
Fíflar beint úr garðinum eru óhemju bragðgóðir bæði steiktir og einnig djúpsteiktir eins og sjá má hér að neðan í innslaginu sem sýnt var á Stöð 2 í gærkvöldi.