Lífið

Borgar Búi kom ekki til greina

Eiður Þór Árnason skrifar
Fjölskyldan er í skýjunum með áfangann.
Fjölskyldan er í skýjunum með áfangann. Aðsend

Milla Ósk Magnúsdóttir, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra og Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík létu skíra son sinn við fallega athöfn á þjóðhátíðardeginum í gær.

Drengurinn sem fæddist í apríl hlaut nafnið Emil Magnús Einarsson. Að sögn Einars sýndi sá litli sínar bestu hliðar í tæplega hundrað ára gömlum skírnarkjól sem ættboginn hefur notað frá því að amma Einars var skírð í honum árið 1926.

Séra Sigurður Árni skírði nýjustu viðbótina í fjölskylduna á heimili þeirra í viðurvist fjölskyldu og vina. Emil er fyrsta barn Millu en Einar á tvær dætur úr fyrra hjónabandi.

Nafnið bræðingur úr ýmsum áttum

„Þetta var bara dásamlegur dagur og gaman að gleðjast með fjölskyldu og vinum eftir svolítið langa törn í flutningum og kosningabaráttu með svona lítinn unga. Þannig að það var bara ótrúlega gaman að fá alla hingað heim,“ segir Einar í samtali við Vísi.

Hann bætir við að nafnið Emil Magnús komi úr ýmsum áttum. Það  sé til að mynda sótt til Emilíu, ömmu Millu, og einnig sé um að ræða bræðing af eiginnöfnum foreldranna. Að lokum beri bæði faðir og stjúpfaðir Millu nafnið Magnús.

Einar gantaðist nýverið með það að hann hafi stungið upp á nafninu Borgar Búi við frekar dræmar viðtökur. Hann segir nafnið ekki hafa komið til greina að þessu sinni.

„Borgar Búi var felldur í atkvæðagreiðslu á fjölskyldufundi,“ segir Einar og hlær.


Tengdar fréttir

Voru á leið í glasa­frjóvgun þegar þau fengu ó­vænt já­kvætt ó­léttu­próf

Einar og Milla höfðu verið samstarfsfélagar í þónokkur ár þegar ástin kviknaði á milli þeirra. Þau giftu sig í miðjum heimsfaraldri og eiga þau nú von á sínu fyrsta barni saman. Þau tala opinskátt um það að hafa glímt við ófrjósemi, en þau voru á leiðinni í glasafrjóvgun þegar kraftaverkið kom óvænt undir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.