Lífið

Bríet er þriðji Idol-dómarinn

Elísabet Hanna skrifar
Idol hefst í haust á Stöð 2. Leitin að stjörnu á aldrinum 16 til 30 ára byrjaði um helgina.
Idol hefst í haust á Stöð 2. Leitin að stjörnu á aldrinum 16 til 30 ára byrjaði um helgina. Stöð 2

Stöð 2 hóf um helgina leit að nýrri íslenskri Idol-stjörnu. Sett hefur verið í loftið skráningarsíða fyrir áhugasama og undirbúningur að nýrri þáttaröð Idol, sem fer í loftið í haust, er formlega hafinn. Seinna í sumar munu fara fram áheyrnarprufur út um allt land.

Fjórir landsþekktir tónlistarmenn skipa dómnefnd þáttarins og er hulunni svipt af dómara númer þrjú í dag. Í fyrradag var greint frá því að rapparinn Herra Hnetusmjör væri í dómnefndinni og í gær kom fram að poppdrottningin Birgitta Haukdal sest einnig í dómarasætið.

Það er engin önnur en tónlistargyðjan Bríet sem ætlar að takast á við verkefnið ásamt þeim og fjórða aðilanum sem verður afhjúpaður á morgun.

Bríet er spennt fyrir hæfileikunum

„Mikið hlakka ég til að sjá allt þetta fallega fólk deila hæfileikum sínum með þjóðinni, þetta verður ómetanleg reynsla sem stækkar listasvið hugans," segir Bríet. Síðasti dómnefndarmeðlimurinn verður tilkynntur í fyrramálið.

16 til 30 ára geta tekið þátt

„Við hvetjum alla áhugasama á aldrinum 16 til 30 ára að senda inn myndband á slóðinni idol.stod2.is þar sem þeir láta ljós sitt skína og syngja tvo lagbúta. Idol-lestin mun einnig verða á ferðinni í leit að hæfileikafólki um landið í sumar. Nánari dagsetningar og staðsetningar verða auglýstar síðar,“ segir í tilkynningu frá Stöð 2.

Tónlistarstjórn þáttanna verður í höndum Magnúsar Jóhanns Ragnarssonar sem stýrir einnig hljómsveit þáttanna.

Idol þættirnir hafa verið sýndir víða um heim síðustu tuttugu ár við gríðarlegar vinsældir. Margar af skærustu stjörnum tónlistarheimsins hafa stigið sín fyrstu skref þar. Íslendingar þekkja þættina einnig vel en fjórar íslenskar þáttaraðir voru sýndar á Stöð 2 á árunum 2003 til 2009.

„Við fundum fyrir miklum áhuga meðal áskrifenda okkar að vera með hæfileikaþátt og Idolið var oftast nefnt. Við vitum að það er fjöldinn allur af ungu fólki sem að vill nýta sér þennan vettvang til að koma sér á framfæri. Við erum gríðarlega spennt að vinna með öllu því fagfólki sem kemur að þáttunum og hlökkum mikið til að sjá ungt hæfileikafólk á Idol sviðinu í haust,“ segir Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjölmiðla Stöðvar 2 og Vodafone.


Tengdar fréttir

Birgitta Haukdal er annar Idol-dómarinn

Stöð 2 hóf um helgina leit að nýrri íslenskri Idol-stjörnu. Sett hefur verið í loftið skráningarsíða fyrir áhugasama og undirbúningur að nýrri þáttaröð Idol, sem fer í loftið í haust, er formlega hafinn. Seinna í sumar munu fara fram áheyrnarprufur út um allt land.

Herra Hnetusmjör er fyrsti Idol-dómarinn

Stöð 2 hóf um helgina leit að nýrri íslenskri Idol-stjörnu. Sett hefur verið í loftið skráningarsíða fyrir áhugasama og undirbúningur að nýrri þáttaröð Idol, sem fer í loftið í haust, er formlega hafinn. Seinna í sumar munu fara fram áheyrnarprufur út um allt land.

Stöð 2 leitar að næstu Idol-stjörnu Íslands

Stöð 2 hefur í dag leit að nýrri íslenskri Idol-stjörnu. Sett hefur verið í loftið skráningarsíða fyrir áhugasama og undirbúningur að nýrri þáttaröð Idol, sem fer í loftið í haust, er formlega hafinn. Seinna í sumar munu fara fram áheyrnarprufur út um allt land.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.