Leifar norðanáttarinnar lifa enn við ströndina Atli Ísleifsson skrifar 5. júlí 2022 07:15 Hiti á landinu verður á bilinu tíu til fimmtán stig, heldur svalara þó norðaustanlands. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir breytilega átt á landinu í dag, víðast hvar á bilinu þrír til átta metrar á sekúndu. Norðanátt hefur hrellt íbúa í norðausturfjórðungi landsins undanfarið og leifar af henni lifa enn úti við ströndina. Má reikna með norðvestan strekkingi þar þar til síðdegis.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að skýjað verði að mestu á landinu, en þurrt að kalla. „Úrkomusvæði nálgast úr suðvestri og nær inná sunnanvert landið og því má búast við súld eða rigningu á þeim slóðum síðdegis. Hiti á bilinu 10 til 15 stig algengur, heldur svalara þó norðaustanlands. Á morgun verður vindur með hægasta móti. Skýjað og úrkomulítið á Suður- og Vesturlandi, en eitthvað gæti sést til sólar á Norður- og Austurlandi. Svipaðar hitatölur áfram. Síðdegis á morgun nálgast lægð og regnsvæði úr suðvestri og fer því að rigna vestanlands annað kvöld og aðfaranótt fimmtudags má búast við rigningu á landinu öllu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Hæg suðlæg eða breytileg átt og skýjað en úrkomulítið. Bjart með köflum á Norður- og Austurlandi. Hiti víða 10 til 15 stig. Fer að rigna suðvestanlands um kvöldið. Á fimmtudag: Sunnan og síðar vestan 8-13 m/s. Víða rigning eða skúrir, en þurrt að kalla austanlands eftir hádegi. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Austfjörðum. Á föstudag: Vestlæg átt og súld eða rigning með köflum, en yfirleitt þurrt á Austfjörðum og Suðausturlandi. Hiti 9 til 17 stig, hlýjast suðaustanlands. Á laugardag: Sunnanátt og rigning, en þurrt á norðaustanverðu landinu. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast norðaustantil. Á sunnudag: Suðlæg eða breytileg átt og rigning öðru hvoru með hita 10 til 14 stig, en þurrt að kalla austanlands með hita að 18 stigum. Á mánudag: Norðlæg átt með súld eða rigningu norðanlands og kólnar, en stöku skúrir syðra.
Veður Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira