Lítið um sumarveður næstu daga Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar 6. júlí 2022 08:27 Vindur og væta minnka á föstudag, næsta lægð er ekki langt undan en von er á henni á laugardag með auknum vindi og rigningu. Vísir/Vilhelm Gunnarsson Lítið virðist vera um sumarveður á næstu dögum en samkvæmt Veðurstofu liggur Ísland í lægðarbraut um þessar mundir. Því valdi öflug og þaulsetin lægð úti fyrir Biskajaflóa, sem beinir lægðum norður eftir til Íslands.
Í dag verður vindur með hægasta móti en skýjað nokkuð víða, smá regndropar gætu stungið sér niður öðru hverju. Einhverjir sólarkaflar eru þó líklegir á Norður- og Austurlandi. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast fyrir norðan. Lægð úr suðvestri nálgast landið um síðdegi og veldur hún rigningu á landinu í nótt ásamt suðaustan 8 til 13 metrum á sekúndu. Lægðin verður stödd við Vestfirði í fyrramálið og því stífur vindur á landinu, eða suðvestan og vestan strekkingur eða jafnvel allhvass. Vætusamt á landinu, en þurrt að mestu austanlands og gæti hiti náð tuttugu stigum á Austfjörðum. Vindur og væta minnka á föstudag, næsta lægð er ekki langt undan en von er á henni á laugardag með auknum vindi og rigningu. Veðurhorfur á landinu næstu daga: Föstudagur Vestan og norðvestan 5-13 m/s og súld eða dálítil rigning og hiti víð 8 til 13 stig, en þurrt suðaustanlands með hita að 17 stigum. Lægir um kvöldið. Laugardagur Suðaustlæg átt, 5-13 m/s og rigning, en bjart með köflum norðaustanlands. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Sunnudagur Suðvestan 5-13 m/s og dálítil rigning eða skúrir, en þurrt að kalla austanlands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á Austfjörðum. Mánudagur Norðlæg átt og víða lítilsháttar væta, en þurrrt að mestu suðvestantil. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast syðst. Þriðjudagur Suðvestanátt með smáskúrum, en mildu í veðri.
Veður Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira