Gul viðvörun víða um land Magnús Jochum Pálsson skrifar 7. júlí 2022 08:07 Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir Suðausturland, Norðurland og miðhálendi. Veðurstofan Gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir Suðausturland, miðhálendi og Norðurland eystra og vestra í dag. Á miðhálendi og Norðurlandi verður viðvörunin í gildi til klukkan 21 en á Suðausturlandi verður hún í gildi alveg fram á miðnætti. Veðurstofan hvetur vegfarendur til að aka varlega á þessum slóðum. Að auki verður rigning með köflum í flestum landshlutum.
Búist er við suðvestan hvassviðri, þrettán til átján metrum á sekúndu, á Suðausturlandi, miðhálendi og Norðurlandi eystra og vestra. Þá má búast við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, allt að 35 metrum á sekúndu. Það geti verið varhugavert fyrir vegfarendur með aftanívagna eða á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Lægð sem er skammt norðvestur af landinu veldur stífri suðvestanátt og víða um land verður rigning.Veðurstofa Á vef Veðurstofunnar segir að lægð sem sé skammt norðvestur af landinu valdi stífri suðvestanátt í dag. Víða séu tíu til átján metrar á sekúndu, hvassast á Suðausturlandi og mið-Norðurlandi. Veðurstofan hvetur vegfarendur til að aka varlega á þeim slóðum, einkum þeir sem séu með aftanívagna eða ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Þar að auki sé rigning með köflum í flestum landshlutum en úrkomuminna á austanverðu landinu. Hiti sé tíu til tuttugu stig, hlýjast á Austfjörðum. Það dragi hægt úr vindi og úrkomu í nótt og í fyrramálið. Þá verði vestlæg átt þrír til tíu metrar á sekúndu en tíu til fimmtán metrar á sekúndu suðaustantil í fyrstu. Stöku skúrir en þurrt suðaustantil. Næsta lægð komi til landsins á laugardag með suðaustanátt og rigningu, einkum sunnantil. Hiti verði þá líka á bilinu tíu til tuttugu stig og hlýjast norðaustantil. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Vestan og norðvestan 5-13 m/s en 10-15 austantil. Súld eða dálítil rigning og hiti víða 8 til 13 stig, en þurrt suðaustanlands með hita að 17 stigum. Lægir seinnipartinn. Á laugardag: Gengur í suðlæga átt 8-15 með rigningu, en bjart með köflum norðaustanlands. Hiti 12 til 19 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Á sunnudag: Suðvestan 5-13 og dálítil rigning eða skúrir, en þurrt að kalla austanlands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á Austfjörðum. Á mánudag: Norðlæg átt og víða lítilsháttar væta, en þurrt að mestu suðvestantil. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast syðst. Á þriðjudag: Vestlæg átt og víða smáskúrir. Hiti breytist lítið. Á miðvikudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt með skúrum en þurrt að kalla austantil. Hiti 10 til 15 stig.
Veður Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira