„Bónus ef að fólk leggur við hlustir og tala nú ekki um ef það hefur gaman af því í leiðinni“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 17. júlí 2022 11:00 Tónlistarmaðurinn JAFET var að senda frá sér sitt fyrsta lag. Aðsend Jafet Máni Magnúsarson var að gefa út sitt fyrsta lag, Tengja mig, undir listamannsnafninu JAFET. Blaðamaður tók púlsinn á honum og fékk að heyra
meira
„Ég hef komið víða við en er að stíga mitt fyrsta skref á sviði tónlistar,“ segir Jafet og bætir við: „Lagið Tengja mig er samið í samvinnu við lagahöfundinn og pródúserinn Bjarka Ómarsson, Bómarz, sem hefur unnið með tónlistarfólki á borð við GDRN, Grétu Salóme, Chris Medina, Ingeborg Walther og Nick Ray.“ Reynsla af kvíða Jafet sækir innblástur í textann meðal annars úr sínu eigin lífi ásamt upplifunum á umhverfinu. „Lagið fjallar meðal annars um hroka, þá þeirra sem telja sig vera æðri öðrum, sem og kvíða, sem ég hef sjálfur reynslu af.“ Ásamt því býr lagið yfir þeim skilaboðum að við erum öll jöfn, sama hver við erum og sama hvað við erum að fást við hverju sinni. Jafet býr yfir fjölbreyttum bakgrunni þrátt fyrir ungan aldur. „Ég byrjaði ungur að leika í Þjóð- og Borgarleikhúsinu, hef einnig leikið í sjónvarpi og kvikmyndum, hef talsett barnaefni, lesið inn á Storytel og unnið á Ríkissjónvarpinu sem dagskrárgerðarmaður.“ JAFET býr yfir fjölbreyttum bakgrunni en er að stíga sín fyrstu skref í tónlistinni.Aðsend Lét loks til skarar skríða Í ár ákvað hann loks að láta af því verða að senda frá sér lag. „Það hefur verið draumur minn lengi að gefa út mitt eigið lag og koma hugmyndum mínum á framfæri með þessum hætti. Ég hef verið mikið í kringum tónlist en faðir minn, Magnús Guðmundsson, var söngvari hljómsveitarinnar Þeyr en ég hef ekki látið til skarar skríða fyrr en nú. Ég tel að markmiðið sé í höfn, enda yrði það einungis bónus ef að fólk leggur við hlustir og tala nú ekki um ef það hefur gaman af því í leiðinni.“
Tónlist Mest lesið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Lífið Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Lífið Ný hugsun í heimi brúnkuvara Lífið samstarf „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið Fleiri fréttir „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira