„Þar er auðveldast fyrir mig að leyfa tilfinningunum að koma fram“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 9. ágúst 2022 16:01 Tónlistarkonan Hugrún var að gefa út smáskífuna Post-Apocalyptic love songs. Aðsend Tónlistarkonan Hugrún Britta Kjartansdóttir byrjaði sex ára gömul í tónlist og hefur komið víða að í þeim heimi. Hún er alin upp við klassíska tónlist og ætlaði sér aldrei að gera popptónlist en örlögin fóru með hana í óvænta átt.
Hugrún gaf nýverið út smáskífuna Post-Apocalyptic love songs og segir hún plötuna draumkennda og koma inn á ólík svið ástarinnar. „Textarnir fjalla um fjórar tegundir af ást. Systra-ást, ást sem er byggð á hatri, hræðslu og ofbeldi, ást sem er ný og blómstrandi og ímyndaða ást sem varð aldrei neitt.“ Hugrún semur og syngur um ólík svið ástarinnar.Aðsend Þegar Hugrún hóf tónlistarnám byrjaði hún að spila á franskt horn. „Ég og systir mín Sólrún Mjöll vorum saman í lúðrasveit þangað til hún byrjaði að spila á trommur og ég skipti yfir í píanóið.“ View this post on Instagram A post shared by Hugrún (@saetukoppur) Óvart popptónlist Það er ýmislegt spennandi á döfinni hjá þessari tónlistarkonu. „Næsta vor er ég að vonast til að taka framhaldspróf en ég setti það á pásu í þrjú ár þegar ég ákvað að flytja til Svíþjóðar. Í Svíþjóð kynntist ég fullt af tónlistarfólki og byrjaði að skrifa popptónlist alveg óvart. Ég ætlaði mér aldrei að gera popptónlist og var alltaf með smá fordóma fyrir því eftir að hafa alist upp í klassískum tónlistarskóla. Ég fattaði svo að það er algjör hugsanaskekkja og eiginlega bara gjörsamlega fáránlegt því tónlist snýst um svo miklu meira en að geta spilað sónötur. Samt enda ég alltaf á því að spila á píanóið ein inn í herbergi og þar er auðveldast fyrir mig að leyfa tilfinningunum að koma fram. Ég hélt líka alltaf að ég gæti ekki gert popptónlist því ég kann ekkert á tölvur. Þess vegna er ég líka svo þakklát fyrir pródúserinn minn sem skrifar og vinnur allt með mér í Svíþjóð og hefur kennt mér svo margt. Svo finnst mér bara ótrúlega gaman að semja og gera popptónlist þannig ég hætti þessu fordómabulli og er mjög sátt með útkomuna.“ Fór loks úr ofbeldissambandi Platan Post-Apocalyptic Love Songs var skrifuð á síðasta ári og kláruð í vor. „Hún fjallar um ástina sem ég hef upplifað eftir að þessi leiðinda veira skall á okkur öll. Þetta eru fjórar mjög ólíkar ástir sem ég fjalla um en til dæmis er eitt lagið um systur mína og okkar samband. Annað lag er um það þegar ég þorði loksins að fara úr ofbeldissambandinu sem ég var í og enn annað um glænýja ást sem er enn þá á mjög viðkvæmu og nýju stigi og við vitum bæði ekki neitt.“ Plötuumslagið fyrir Post-Apocalyptic love songs.Aðsend Hugrún hlakkar til komandi tíma í tónlistinni en hún mun meðal annars spila á Hamraborg festival þann 27. ágúst næstkomandi. „Ég er mjög spennt fyrir því tækifæri,“ segir hún að lokum.
Tónlist Ástin og lífið Tónlistarnám Tengdar fréttir „Stórstjarna í Indie heiminum“ væntanleg til landsins Tónlistarkonan Aldous Harding verður með tónleika í Hljómahöllinni þann 15. ágúst næstkomandi. Harding kom fram á Iceland Airwaves hátíðinni árið 2017 og hefur á undanförnum árum hlotið jákvæð viðbrögð frá gagnrýnendum fyrir plötur sínar. 9. ágúst 2022 13:01 „Bless í bili“ Tónlistarmennirnir Kristinn Óli Haraldsson og Jóhannes Damian Patreksson, einnig þekktir sem Króli og JóiPé ætla að gera upp síðustu sex árin á lokatónleikum sínum saman, í bili. Þeir verða þó ekki einir á sviðinu en Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ætlar einnig að spila með þeim. 8. ágúst 2022 11:31 Kvenkyns rokkarar slá til ærandi veislu fyrir augu og eyru gesta Hljómsveitirnar Mammút og Kælan Mikla tilkynntu á dögunum tónleika sem haldnir verða í Gamla Bíói 16. september næstkomandi. Er þetta í fyrsta sinn sem böndin taka höndum saman þar sem þau munu spila það helsta af sínum ferlum í kraftmikilli, þungri og ærandi veislu fyrir augu og eyru gesta. Blaðamaður tók púlsinn á Ásu Dýradóttur í Mammút. 5. ágúst 2022 10:01 Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Lífið Fleiri fréttir Space Odyssey opnar á nýjum stað Dr. Gunni spyr hvort það sé ekki bara búið að vera gaman Afhjúpað á hvaða dögum böndin spila á Airwaves Reyna að eyða minningum um hvort annað í sturluðum dansi Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið „Þetta er sem betur fer ekki upp á líf og dauða“ Ævintýrin hófust þegar hann hafnaði Juilliard Enginn súr í sætu teiti í Ásmundarsal „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Rokkþyrstir geta tekið gleði sína á ný Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið Frumsýning á Vísi: Landsliðsmaður gefur út lag með pabba sínum Taylor Swift jafnaði met Beyoncé á VMA Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest Sáu ekki fyrir sér vinsældirnar en fagna nú 36 árum Sergio Mendes höfundur Mas Que Nada látinn Gáfu tóndæmi af Barfly í beinni Aldrei séð annað eins: IceGuys seldi nítján þúsund miða Herra Hnetusmjör stoltur eftir tryllta afmælishelgi Samtalið órjúfanlegur hluti af sköpuninni Sjá meira
„Stórstjarna í Indie heiminum“ væntanleg til landsins Tónlistarkonan Aldous Harding verður með tónleika í Hljómahöllinni þann 15. ágúst næstkomandi. Harding kom fram á Iceland Airwaves hátíðinni árið 2017 og hefur á undanförnum árum hlotið jákvæð viðbrögð frá gagnrýnendum fyrir plötur sínar. 9. ágúst 2022 13:01
„Bless í bili“ Tónlistarmennirnir Kristinn Óli Haraldsson og Jóhannes Damian Patreksson, einnig þekktir sem Króli og JóiPé ætla að gera upp síðustu sex árin á lokatónleikum sínum saman, í bili. Þeir verða þó ekki einir á sviðinu en Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ætlar einnig að spila með þeim. 8. ágúst 2022 11:31
Kvenkyns rokkarar slá til ærandi veislu fyrir augu og eyru gesta Hljómsveitirnar Mammút og Kælan Mikla tilkynntu á dögunum tónleika sem haldnir verða í Gamla Bíói 16. september næstkomandi. Er þetta í fyrsta sinn sem böndin taka höndum saman þar sem þau munu spila það helsta af sínum ferlum í kraftmikilli, þungri og ærandi veislu fyrir augu og eyru gesta. Blaðamaður tók púlsinn á Ásu Dýradóttur í Mammút. 5. ágúst 2022 10:01