Tónlist

Silversun Pickups vilja ólm spila á Íslandi

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Brian Aubert í Silversun Pickups ræddi við Ómar á X-inu þegar nýja platan kom út.
Brian Aubert í Silversun Pickups ræddi við Ómar á X-inu þegar nýja platan kom út. Getty/Scott Dudelson

Sjötta plata sveitarinnar The Silversun Pickups, Physical Thrills, kom út í vikunni. Brian Aubert söngvari hljómsveitarinnar var á línunni við Ómar Úlf á X-977.

Silversun Pickups er margverðlaunuð alternative rokksveit stofnuð í Los Angeles árið 2000. Sveitin hefur gefið út sex plötur og hafa fyrir löngu slegið í gegn með lögum eins og Lazy Eye, Panic Switch og Well Thought Out Twinkles.

Brian óð beint í að dásama Ísland og er nýbúinn að ræða við sveitina um að fylgja hljómsveitinni Wilco til Íslands á næsta ári þegar að sveitin sú spilar þrenna tónleika í Hörpu. Silversun Pickups og Wilco eru miklar vinasveitir og er þetta því raunhæfur möguleiki.

Brian hefur komið til Íslands í frí með eiginkonu sinni og skortir næstum orð til lýsa landi og þjóð enda eyjapeyi sjálfur, hálf fjölskylda hans kemur frá Hawaii

Nýja platan var samin í rólegheitum eftir að Covid stöðvaði seinustu tónleikaferð Silversun Pickups. Butch Vig stjórnaði upptökum en hann er maðurinn sem að stýrði upptökum á Nevermind með Nirvana og hefur unnið með ansi stórum nöfnum í rokkinu eins og Foo Fighters og Smashing Pumpkins. 

Viðtalið má heyra í spilaranum hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.