Önnur lægð á leið yfir landið en enn hlýtt norðaustantil Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 31. ágúst 2022 06:57 Talsverð úrkoma verður á Suður- og Vesturlandi í dag. Vísir/Vilhelm Önnur lægð mun ganga yfir landið núna í morgunsárið en henni fylgir rok og rigning sunnan- og vestanlands. Hlýjast verður norðaustantil þar sem hitastig mun líklega ná átján gráðum.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þar segir að lægðinni fylgi sunnan 8 til 15 m/s og rigning á Suður- og Vesturlandi. Útlit sé fyrir talsverða úrkomu víða, einkum við fjöll. Norðaustantil megi jafnframt búast við rigningu en þó í mun minna magni. Áfram verði hlýjast á norðaustanverðu landinu þó ekki megi búast við jafn heitum degi og í gær. Á morgun stefnir í hæglætisveður með skúrum víða um land og enn kólnar norðaustantil með hámarkshita þar um þrettán gráður. Svipaður hiti verður í flestum öðrum landshlutum. Veðurhorfur næstu daga Á fimmtudag: Norðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og skúrir. Hiti 7 til 13 stig. Á föstudag: Norðan og norðaustan 8-15 m/s. Rigning með köflum um landið austanvert fyrri hluta dags, annars þurrt að kalla og jafnvel bjart suðvestantil. Hiti 6 til 14 stig, mildast sunnan heiða. Á laugardag: Fremur hæg breytileg átt og bjart með köflum, en suðvestan strekkingur á Vestfjörðum um kvöldið. Hiti 8 til 15 stig. Á sunnudag: Vestlæg eða breytileg átt og víða bjartviðri, en skýjað með köflum vestantil og lítilsháttar væta þar þegar líður á daginn. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Eldar loga í LA og neyðarástandi lýst yfir Erlent Ibrahim hafi horfið sjónum bílstjórans í fáeinar sekúndur Innlent Íbúar hafi óttast að svona gæti farið Innlent Gerði ráð fyrir að verða formaður þingflokksins Innlent Ummælin um Grænland risastórt mál sem ætti að taka alvarlega Innlent Af hverju langar Trump í Grænland? Erlent Sjálfstæðismenn orðnir eins og vinstrimenn Innlent Fluttur á slysadeild til aðhlynningar eftir bruna á Sævarhöfða Innlent Krefjast upptöku á aragrúa gullmuna í fíkniefnamáli tvíbura Innlent Telur stjórnsýsluúttekt litlu breyta fyrir íbúa og íhugar að flytja Innlent Fleiri fréttir Yfirleitt þurrt og bjart veður sunnan- og vestantil Má reikna með snjókomu eða éljum síðdegis Norðanáttin getur náð stormstyrk Vindstrengir ná mögulega stormstyrk í kvöld Slydda eða snjókoma sunnan- og vestantil Dálítil él og frost að tíu stigum Kalt og rólegt veður á fyrsta degi ársins Talsvert frost en rólegt veður þegar nýtt ár gengur í garð Segir umferðarmenninguna oft erfiða á Hellisheiðinni Snjómokstur hófst klukkan fjögur í nótt „Það versta stendur yfir áramótin“ Útlit fyrir snjókomu vestast Smálægðir keppast við að stýra veðrinu í dag Spáir stillu og miklu svifryki um áramótin Stíf suðvestanátt áfram ríkjandi Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Appelsínugular viðvaranir og vegir víða lokaðir Appelsínugular viðvaranir og heiðar lokaðar Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Ákveðin suðaustanátt og víða snjókoma Stíf norðanátt og frost í flestum landshlutum Köldu éljalofti beint til landsins Víða kaldi og él Lægð beinir vestlægri átt til landsins Hlýnar með skúrum og slydduéljum Stormur á Austfjörðum Allhvass vindur með skúrum eða éljum Útlit fyrir allhvassan vind með rigningu Vindur á niðurleið en næsta lægð nálgast úr suðvestri Góðar líkur á rauðum jólum í Reykjavík Sjá meira