Stækkuð Ljósleiðaradeild handan við hornið: „Þýðir bara stærri flóra af toppleikmönnum“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 9. september 2022 22:31 Bjarni mætir með nýtt lið til leiks þegar Ljósleiðaradeildin hefst á þriðjudaginn. Ljósleiðaradeildin í CS:GO er handan við hornið, en framundan er sjöunda tímabil deildarinnar. Deildin hefst næstkomandi þriðjudag og verður stærri en nokkru sinni fyrr.
Liðunum í Ljósleiðaradeildinni fjölgar um tvö þetta tímabilið og munu því tíu lið keppa um Íslandsmeistaratitilinn í stað átta eins og hefur verið seinustu ár. Liðin tíu sem spila í Ljósleiðaradeildinni á tímabilinu eru: Dusty, Þór, Ármann, Fylkir, Ten5ion, Breiðablik, LAVA, SAGA, Viðstöðu og NÚ. Tímabilið hefst sem áður segir næstkomandi þriðjudag, þann 13. september, og deildarkeppninni lýkur þann 16. febrúar á næsta ári. Að deildarkeppninni lokinni taka Meistaramótin svo við, en þau fara fram á tímabilinu 19. febrúar-25. mars. Ekki nóg með það heldur er íslenska Blast umspilið orðinn hluti af dagskránni sem er kominn til að vera og fer það fram dagana 13.-26. nóvember. Liðum fjölgar úr 8 í 10 í efstu deild Ljósleiðaradeildarinnar. Tímabilið byrjar 13 september. Deildarkeppni lýkur 16. febrúar. Meistaramótin fara svo fram á tímabilinu 19. febrúar - 25. mars (sjá mynd í viðhengi). Alla jafna verður leikið á þriðjudögum og fimmtudögum í allan vetur, en einnig verða spilaðir tveir svokallaðir Ofur-laugardagar þar sem heil umferð fer fram. Fyrri Ofur-laugardagurinn verður þann 15. október og sá síðari þann 21. janúar, en á myndinni hér fyrir neðan má sjá leikjadagskrá vetursins. Íslandsmeistarinn mætir með nýtt lið Eitt af nýju liðunum sem kemur inn í Ljósleiðaradeildina á komandi tímabili er liðið NÚ. Meðal leikmanna liðsins er Barni, sem varð Íslandsmeistari með Dusty á seinasta tímabili, en hann mætir nú með ungt lið sér við hlið til leiks. „Þetta leggst bara mjög vel í mig. Ég er með mjög ungum strákum sem eru að bæta sig mjög mikið bara með hverjum degi,“ sagði Bjarni þegar Vísir náði tali af honum fyrr í dag. „Ég er ekki búinn að staðfesta það en ég held að við séum yngsta liðið í deildinni. Allir nema einn eru mjög óreyndir þannig það þarf kannski að taka það inn í reikninginn líka. En annars er ég bara mjög spenntur.“ Þá segir Bjarni að liðið hafi fengið nokkuð góðan tíma til að æfa saman í sumar, en þó megi alltaf gera betur. „Já, maður vildi auðvitað alltaf vilja hafa meiri, en við erum búnir að ná að æfa alveg slatta.“ Verandi ríkjandi Íslandsmeistari segist Bjarni einnig finna fyrir talsverðri ábyrgð þegar kemur að nýja liðinu. „Já já, ég finn alveg fyrir talsverðri ábyrgð og þetta er bara mjög spennandi. Þetta er nýtt umhverfi. Ég held að það að ég hafi farið úr Dusty hafi bara verið jákvætt fyrir alla hlutaðeigandi.“ Hann gerir sér þó grein fyrir því að hjá nýja liðinu séu ekki miklar líkur á sömu hæðum og hjá Dusty, en hefur trú á því að hann og liðsfélagar hans geti strítt stærri liðum deildarinnar. „Maður segir auðvitað aldrei að maður sé að fara að tapa öllu. En þessi úrslitakeppni er raunhæft markmið og ég held að það komi bara fljótt í ljós hvernig tímabilið þróast.“ „Ég hef lítið pælt í áhrifum þess að stækka deildina um tvö lið, en það þýðir bara stærri flóra af toppleikmönnum. Þannig að þetta er bara jákvætt held ég,“ sagði Bjarni að lokum.
Ljósleiðaradeildin Rafíþróttir Mest lesið Þurfti að leita til tannlæknis eftir vænan olnboga Körfubolti Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Enski boltinn Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Golf Schmeichel lofsamar Landin: „Hugrakkasta fólk sem ég hef séð“ Fótbolti Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Enski boltinn Í beinni: Arsenal - Southampton | Sigurlausir nýliðar mæta á Emirates Enski boltinn Nik fullur sjálfstrausts fyrir úrslitaleikinn Íslenski boltinn Í beinni: Fram - Vestri | Svarar Fram fyrir sig eftir risatapið? Íslenski boltinn Komdu þér í gírinn fyrir úrslitaleikinn Íslenski boltinn Schumacher sást meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár Formúla 1 Fleiri fréttir Fyrsti sigur Rafík innsiglaður með „jarðsetningu“ á Sögu Grænlensku börnin spiluðu tölvuleiki með stjörnur í augunum Hnífjafnt á toppnum í Rocket League Míludeildin er stærsta Valorant-mótið frá upphafi Venus skellti Skagamönnum á botninn Denas og Kristófer stinga af í ELKO-Deildinni TÍK horfir fram á veginn frá Bessastöðum Félagslegi þátturinn vegur þungt á rafíþróttaæfingum Fjölnis TDE hirtu Leifarnar og tvö stig í leiðinni Jötunn og Böðlar berjast í bökkum á botninum Baráttan harðnar í Valorant Stofnandi Rafíþróttasambands Íslands í Esports Hall of Fame Dusty aftur á toppinn eftir 4. umferð Fortnite er aðalleikurinn Óbreytt staða á toppnum í Rocket League „Ég er í sjokki eftir þennan leik“ Ármenningar taplausir á toppnum Mikið fjör á fjölmennu ungmennamóti Öruggir sigrar í tveimur einvígum á netskákmótinu Valkyrjur og Venus ósigraðar á toppnum Dusty aftur á toppnum eftir sigur á Kano Dusty og 354 keyrðu sig í gang með geggjaðri viðureign Frábær endasprettur hjá Veca gerði út af við Hött Óvenju mörg ný andlit í Rocket League Grimm barátta og sviptingar í Fortnite Samstilltir Þórsarar afgreiddu ryðgaða Böðla Klutz réði ekkert við GoldDiggers Dusty enn á toppnum eftir tvær umferðir Metþátttaka í kvennadeildinni í Valorant Bestu hakkavélarnar byrja mótið sem þjálfarar Sjá meira