Fantagóður Furious kom Breiðabliki á blað Snorri Rafn Hallsson skrifar 30. september 2022 16:30 Lið Viðstöðu vann hnífalotuna án þess að missa mann og byrjaði því í vörn. Leikmenn Breiðabliks voru virkilega beittir í upphafi leiks. Furious var með þrefalda fellu í fyrstu lotu en Sax og Viruz hittu líka vel. Lið Viðstöðu vann næstu sex lotur. Tímasetningar liðsins voru virkilega góðar og leikmenn Breiðabliks áttu í vandræðum með að hitta úr skotum sínum. Blazter lék á alls oddi, spilaði framarlega á kortinu til að sækja opnanir og Allee fylgdi þeim vel eftir. Breiðablik komst aftur yfir undir lokin en síðustu tvær loturnar féllu með Viðstöðu. Staða í hálfleik: Breiðablik 7 – 8 Viðstöðu Þó fyrri hálfleikur hafi verið jafn þar sem lið Blazter, Allee og félagar í Viðstöðu héldu uppi góðum vörnum er ekki hægt að segja það sama um þann síðari. Aftur vann Breiðablik skammbyssulotuna án þess að missa mann og Furious og Sax endurtóku leikinn í þeirri næstu. Stórskemmtilegt var að fylgjast með Furious leika listir sínar, en hinu megin var Blazter öflugur í að skapa pláss fyrir liðsfélaga sína. Pláss sem þeir nýttu alls ekki nógu vel og vann Breiðablik því heilar 8 lotur í röð. Lið Viðstöðu náði í eitt stig í 24. lotu en þeirri 25. lokaði enginn annar en Furious með ótrúlegri ninja-aftengingu til að tryggja Breiðabliki sín fyrstu stig í deildinni. Lokastaða: Breiðablik 16 – 9 Viðstöðu Næstu leikir liðanna: Breiðablik – LAVA, fimmtudaginn 6/10 klukkan 19:30 Viðstöðu – SAGA, fimmtudaginn 6/10 klukkan 21:30 Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands. Rafíþróttir Ljósleiðaradeildin Breiðablik
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti