Norðvestan strekkingur austantil og bjart að mestu fyrir sunnan Atli Ísleifsson skrifar 7. október 2022 07:07 Hiti á landinu verður á bilinu eitt til tíu stig. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir norðvestan strekkingi austantil á landinu í dag, en að það lægi í öðrum landshlutum. Dálítil rigning eða slydda með köflum norðanlands, en bjart að mestu um landið sunnanvert.
Á vef Veðurstofunnar segir að hitinn á landinu verði á eitt til tíu stig, mildast syðst. Á morgun kemur lægð inn á Grænlandshaf. Henni fylgir suðaustan kaldi eða stinningskaldi og rigning með köflum eða skúrir. Hiti 3 til 9 stig yfir daginn. Norðaustanlands verður heldur svalara og þar gæti úrkoman fallið sem slydda. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Á sunnudag verður lægðin við austurströndina og dýpkar ört. Þá er útlit fyrir að það gangi í norðan hvassviðri eða storm með mikilli slyddu eða snjókomu á Norður- og Austurlandi. Þar verður ekkert ferðaveður ef að líkum lætur. Sunnanlands verður úrkomulítið en þar gæti samt sem áður orðið mjög hvasst, til að mynda undir Vatnajökli. Það er enn nokkur breytileiki í spám varðandi þetta veður, t.d. benda nýjustu spár til þess að vesturhluti landsins sleppi betur en útlit var fyrir í gær. Það gæti hins vegar hæglega breyst aftur og er fólk hvatt til að fylgjast vel með veðurspám. Gular viðvaranir taka gildi á norðanverðu landinu um helgina.Veðurstofan Gular viðvaranir um helgina Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna storms á norðurhluta landsins um helgina. Vestfirðir 9. okt. kl. 06:00 til 10. okt. kl. 03:00. Norðan 18-23 m/s með talsverðri slyddu eða snjókomu, einkum norðantil. Talsverðar líkur á slydduísingu. Mikilvægt er að ganga vel frá utandyra og koma búfénaði í skjól. Miklar líkur á að færð spillist, einkum á fjallvegum. Ekkert ferðaveður. Strandir og Norðurland vestra 9. okt. kl. 10:00 til 10. okt. kl. 04:00. Norðan 18-25 m/s með mikilli úrkomu, slyddu við ströndina, annars snjókomu. Miklar líkur eru á slydduísingu á innviði og vegi. Fólki er bent á að ganga vel frá utandyra og koma búfénaði í skjól. Miklar líkur á að færð spillist og ekkert ferðaveður á meðan viðvörunin er í gildi. Norðurland eystra 9. okt. kl. 10:00 til 10. okt. kl. 10:00. Norðan 18-25 m/s með mikilli úrkomu, slyddu við ströndina, annars snjókomu. Miklar líkur eru á slydduísingu á innviði og vegi. Fólki er bent á að ganga vel frá utandyra og koma búfénaði í skjól. Miklar líkur á að færð spillist og ekkert ferðaveður á meðan viðvörunin er í gildi. Austurland að Glettingi 9. okt. kl. 14:00 til 10. okt. kl. 12:00. Norðvestan 15-25 m/s með mikilli rigningu eða slyddu, en snjókomu á fjallvegum. Miklar líkur eru á slydduísingu á innviði og vegi. Fólki er bent á að ganga vel frá utandyra og koma búfénaði í skjól. Miklar líkur á að færð spillist og ekkert ferðaveður á meðan viðvörunin er í gildi. Gular viðvaranir taka gildi á norðanverðu landinu um helgina.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðaustan og austan 8-15 m/s og rigning eða skúrir, en sums staðar slydda norðaustanlands. Yfirleitt hægari vindur eftir hádegi. Hiti 1 til 9 stig, svalast norðaustantil. Á sunnudag: Gengur í norðan og norðvestan 18-25 m/s með talsverðri eða mikilli slyddu eða snjókomu, en rigning á láglendi norðaustantil. Mun úrkomuminna sunnanlands. Hiti 0 til 7 stig, mildast austast. Á mánudag: Minnkandi norðvestanátt og dregur úr ofankomu, en þurrt á Suður- og Vesturlandi. Hiti um og yfir frostmarki. Á þriðjudag: Suðaustan- og austanátt og fer að rigna, en lengst af úrkomulítið á Norður- og Austurlandi. Hlýnar talsvert. Á miðvikudag: Suðvestlæg eða breytileg átt og rigning eða skúrir. Hiti 3 til 8 stig. Á fimmtudag: Norðaustlæg átt og þurrt að kalla, en dálítil slydduél fyrir norðan. Kólnar í veðri.
Veður Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira