iPad 10 í lit, iPad Pro með M2 og nýtt Apple TV Epli 26. október 2022 08:00 Fjórir hressandi litir eru í boði á iPad 10 Tíunda kynslóð iPad fær litríka og stóra uppfærslu. iPad 10 spjaldtölvan fær stærri 10,9” skjá með rúnuð horn án þess að stækka, hraðvirkan fingrafaralesa á hliðinni sem fer minna fyrir, vel staðsetta 12 megadíla fremri myndavél sem hentar betur fyrir myndsamtöl og A14 Bionic örgjörva sem eykur afköst án þess að draga úr rafhlöðuendingu. iPad 10 fær öflugra þráðlaust samband og styður nú bæði 5G og WiFi 6.
Fjórir litir og nýtt lyklaborð iPad 10 kemur í fjórum hressandi litum: klassískum silfur, gulum, bleikum og bláum. Skelin er alveg endurhönnuð og er loksins kominn í mjúku hornin sem ríkja í hönnum Apple núna. iPad 10 fær nýtt lyklaborð smellist á með seglum sem kemur með snertimús og aðgerðartökkum efst. Magic Keyboard Folio lyklaborðið kemur einnig með baki með stillanlegum halla. iPad 10 styður fyrstu kynslóð af Apple Pencil. Magic Keyboard Folio lyklaborð fyrir iPad með snertimús og vel staðsetta myndavélin sem er efst fyrir miðju iPad Pro með M2 örgjörva iPad Pro 11” og 12,9” spjaldtölvurnar fá líka ást og athygli: öflugri Apple M2 örgjörva, nýja svif-virkni fyrir Apple penna, ProRes hröðunarkjarna fyrir myndvinnslu, 5G farnet og stuðning við WiFi 6 þráðlaus net. iPad Pro eru nú sjálfbærari og nota endurnýtt gull að öllu leyti, ásamt því að nota endurnýtt ál, tin og önnur sjaldgæf jarðefni. iPad Pro 11 og 12,9 fá uppfærslu í M2 örgjörva Apple Apple penninn getur nú svifið yfir skjáinn og er numinn í allt að 12 mm fjarlægð. Öpp geta nýtt sér þann eiginleika á ýmsa máta: teikniforrit eins og ProCreate getur forsýnt þér það á að teikna eða sýnt þér stærð bursta áður hann er notaður. iPad Pro 2022 geta numið Apple penna í allt að 12 mm fjarlægð Miklu betri stuðningur við skjái og hraðari fjölverkun iPadOS er að fá stóra uppfærslu í haust sem iPad Pro ná að nýta sér vel. Þá verður miklu þægilegra að tengjast skjám með Thunderbolt4 tenginu og nota utanáliggjandi skjá eins og fólk þekkir af MacOS. Stage Manager eykur hraða fjölverkunar með svokölluðum sviðum, sem eru safn af allt að fjórum öppum sem þú getur raðað upp að þínum hætti á iPad skjánum eða safn af allt að átta öppum á utanáliggjandi skjá. Sviðin geta verið allt að fjögur og eru staðsett vinstra megin á skjánum. Taktu iPad fjölverkun á næsta stig með Stage Manager Nýtt Apple TV með HDR10+ stuðning Apple TV, sem er einn einn vinsælasti myndlykill Íslands, fær nýjan A15 Bionic örgjörva og HDR10+ stuðning sem gerir myndefni bjartara og meira lifandi. Siri fjarstýringin fær USB-C hleðslutengi í stað Lightning. Tvær útgáfur eru í boði: 64GB án nettengis og 128GB með nettengi og Thread stuðningi fyrir snjallheimilið. Siri fjarstýringin er nú með USB-C tengi
Tækni Apple Mest lesið Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Viðskipti innlent Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Viðskipti innlent Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Neytendur Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Viðskipti innlent Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Viðskipti innlent Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Viðskipti innlent Reitir hrista upp í skipuritinu Viðskipti innlent Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Viðskipti innlent Ýmsar ástæður fyrir lokun en launin stóra vandamálið Viðskipti innlent Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Fleiri fréttir Einn glæsilegasti golfvöllur landsins í Kiðjabergi Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Áhersla á öryggi viðskiptavina Eftirvagnar breyta aksturseigileikum bílsins Tæknin tekur yfir leigubílamarkaðinn Hægt að tilkynna holur á vegum á vegbót.is – FÍB er alltaf á vaktinni Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Bílaumboðið Una skrifar undir samning við XPENG Skelltu þér í sólina í sumar Nýjungar á Hótel Grímsborgum Ánægðari börn, foreldrar og starfsfólk og öflugt fagstarf Brimborg lækkar verð á Polestar Iðnaðarmaður ársins 2024 er fundinn Ofursmart heilsárshús Glæsilegar íbúðir með frábæru útsýni Ný leið fyrir fyrirtæki til að rafvæða bílaflotann Toyota fagnar sumrinu á laugardag Þú þarft ekki að óttast rigninguna Eitt glæsilegasta byggingarsvæði höfuðborgarsvæðisins Sjá meira