Veður áfram með rólegasta móti miðað við árstíma Atli Ísleifsson skrifar 28. október 2022 07:03 Reikna má með súld eða dálítilli rigningu framan af degi á vesturhelmingi landsins. Bjartviðri austantil. Vísir/Vilhelm Veður á landinu er áfram með rólegasta móti miðað við árstíma. Spár gera ráð fyrir vestlægri átt, þremur til átta metrum á sekúndu í dag.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði súld eða dálítil rigning framan af degi á vesturhelmingi landsins, en lítil eða engin úrkoma seinnipartinn. Bjartviðri á austanverðu landinu. „Suðlæg átt á morgun, víða á bilinu 5-10 m/s. Dálítil væta á köflum um landið sunnan- og vestanvert, en þurrt og bjart veður á Norður- og Austurlandi. Hiti 2 til 7 stig, en norðaustanlands frystir að næturlagi. Það er rakt loft til staðar allvíða á landinu, lofthiti er ekki langt yfir frostmarki og vindur hægur. Við þessar aðstæður getur myndast lúmsk hálka ef nær að kólna nærri yfirborði. Rétt er að vera á varðbergi gagnvart hálkunni, en það á nú reyndar oftast við í skammdegismánuðunum á Íslandi,“ segir í tilkynningunni. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Sunnan 5-10 m/s, skýjað og dálítil væta við suður- og vesturströndina, hiti 2 til 7 stig. Léttskýjað norðaustanlands og hiti kringum frostmark. Á sunnudag: Austlæg átt 3-8, skýjað og sums staðar dálítil væta. Austan 10-15 og talsverð rigning á suðaustanerðu landinu síðdegis. Hiti 2 til 7 stig. Á mánudag og þriðjudag: Austlæg eða breytileg átt og rigning með köflum í flestum landshlutum. Hiti breytist lítið. Á miðvikudag og fimmtudag: Útlit fyrir norðaustanátt með rigningu eða slyddu af og til á Norður- og Austurlandi, en þurrt að mestu sunnan heiða. Kólnar heldur í veðri.
Veður Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira