Leikjavísir

Einvígi stjóranna heldur áfram

Samúel Karl Ólason skrifar
Stjórinn 2

Einvígi stjóranna heldur áfram í kvöld, þar sem þeir Hjálmar Örn og Óli Jóels keppa um hvor nær betri árangri með lið sitt í fjórðu deildinni í Englandi í Football Manager 2023. Hjálmar stýrir Stockport og Óli stýrir Grimsby.

Strákarnir fá takmarkaðan tíma til að undirbúa lið sín fyrir leiki, til að kaupa leikmenn og ganga frá öðrum málum. Þeir þurfa sömuleiðis að draga áskorunarspil sem eiga að gera þeim erfitt um vik. Til dæmis gætu þeir dregið spil sem bannar þeim að nota leikmenn ef nafn þeirra byrjar á T.

Fylgjast má með streyminu í spilaranum hér að neðan, á Twitchsíðu GameTíví eða Stöð 2 eSport. Stjórinn hefst klukkan sjö í kvöld.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.