Hér má sjá tónlistarmyndbandið við lagið Dansa meira:
Plastprinsessa sem losar um pirring
K.óla segir innblástur fyrir laginu upprunalega hafa komið þegar hún var að semja útskriftarverk sitt úr Listaháskólanum.
„Þar var ég að vinna að eins konar óperu sem innihélt þrjá aðalkaraktera. Af þeim var ein sem ég kalla Plastprinsessuna, hún hefur komið víða við í verkum mínum. Þarna var ég að semja lag fyrir hana þar sem hún var að losa um pirring.“
Lagið var þá með öðrum texta en eftir að hún kláraði útskriftarverkið hélt hrifning hennar á lagi áfram. Því ákvað hún að vinna það meira og gerði nýjan texta.
„Lagið inniheldur þó enn þá einhverskonar pirrings losun. Þetta lag og þessi texti er mest fyrir sjálfa mig, að leyfa mér að sleppa takinu, dansa, halda áfram og skilja við hluti í fortíðinni. “

Lagið kom út í sumar á fjögurra laga EP plötu sem ber nafnið Allt og sumt. Á henni spila Annalísa Hermannsdóttir á hljómborð, Andrés Þór Þorvarðarson á trommur, Sara Ósk Þorsteinsdóttir á gítar og Katrín Helga Ólafsdóttir (K.óla) á bassa og söng. Hún var tekin upp og hljóðblönduð af Gesti Sveinssyni.

Lærði að stýra báti
Eins og áður segir sameina K.óla og Annalísa krafta sína við gerð myndbandsins en þær hafa mikið unnið saman í gegnum tíðina.
„Annalísa hefur spilað með mér á sviði í mörg ár, í K.óla live bandinu og við höfum unnið saman að gerð margra myndbanda og uppsetninga á leikverkum. Við vildum báðar gera eitthvað sem væri ekki of mikið stress að gera, í eins konar þema við textann. Við unnum með nokkur concept; Endurspeglanir, suð, vatn og svo bara líka að hafa gaman.“

Tökur á myndbandinu fóru fram í sumar.
„Svo vonandi lýsir það aðeins upp dimman nóvember mánuð núna,“ segir K.óla og bætir við:
„Við fengum hjálp frá Siglingaklúbbnum Þyt þar sem ég fór á námskeið í að stýra báti og fékk svo að vera á einum báti meðan Annalísa var með reyndum sjóara á öðrum mótorbát að taka mig upp.
Það var klárlega skemmtilegasti tökudagurinn. Við fengum að taka rest upp í Tóma Rýminu sem er dýrmætur staður fyrir sviðslista grasrótina á íslandi.“

Leikgleði, litir og húmor
K.óla stundar mastersnám í tónlistarsköpun í Kaupmannahöfn um þessar mundir.
„Ég hef verið að gera tónlist undir listamannsnafninu K.óla í rúm 5 ár og ef það er einhver rauður þráður í gegnum það allt myndi ég segja að leikgleði, litir og húmor séu stórir þættir í listsköpun minni, bæði í tónlist og hvernig hún er sett fram myndrænt.
Tónlistin er alltaf að toga mann í nýjar áttir og ég er heppin hvað ég hef getað gert mismunandi hluti, til dæmis verk fyrir sinfóníuhljómsveit Íslands og ferðast til Grænlands að vinna með fjölþjóðlegum listahóp.
Á döfinni er svo að vinna að sýningu með Önnulísu og fleirum við uppsetningu í Borgarleikhúsinu í janúar,“ segir K.óla að lokum.