Þinglýstir kaupsamningar fjölbýliseigna ekki færri síðan í upphafi 2019
![Leita þarf tæp fjögur ár aftur í tímann til að finna jafnfáa þinglýsta kaupsamninga og raun bar vitni í október síðastliðnum.](https://www.visir.is/i/E0C21DC872CD396EB91855A985A39CA291A3C15E844F29BA45E1EFE536CC9D75_713x0.jpg)
Þrátt fyrir að fasteignaverð hafi hækkað lítillega við síðustu birtingu Þjóðskrár um fasteignaverð í október, eru fyrir hendi skýr merki um töluvert hægari gang á fasteignamarkaði. Í október síðastliðnum var alls 516 kaupsamningum um fjölbýli þinglýst hjá sýslumanni. Leita þarf aftur til janúarmánaðar 2019 til að finna færri kaupsamninga fjölbýliseigna í einum mánuði.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/7D9B55AC4A2E7F14EC6E0EE92EAF461B5DA92B44B0D8051AC7412E1C422C31A0_308x200.jpg)
Frekari merki kólnunar á fasteignamarkaði
Fasteignamarkaðurinn heldur áfram að kólna en verulega hefur dregið úr hlutfalli íbúða sem seljast yfir ásettu verði. Meðal kaupverð á höfuðborgarsvæðinu heldur áfram að lækka.
![](https://www.visir.is/i/2087E6D640226CED434C8AB6FF31D8EBD7233211B1E7C1C6D1BD78BCC0E5AF85_308x200.jpg)
Seðlabankinn hækkar vexti í sex prósent og hafa þeir ekki verið hærri frá 2010
Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur hækkað meginvexti um 0,25 prósentur, úr 5,75 prósent í 6 prósent, og vísar meðal annars til þess að undirliggjandi verðbólga hefur áfram aukist og vísbendingar eru sömuleiðis um að kjölfesta verðbólguvæntinga í markmið Seðlabankans hafi veikst. Mikill óvissa var meðal markaðsaðila um vaxtaákvörðun Seðlabankans, hvort þeim yrði haldið óbreyttum eða hækkaðir jafnvel upp í allt að 50 punkta.