Fann ástina á jólunum
Selma og kærasti hennar Kolbeinn Tumi Daðason festu nýverið kaup á sinni fyrstu eign saman og verða jólin í ár þeirra fyrstu saman á nýju heimili. Jólatréð er löngu komið upp og að baki aðventuboð með vinum og vandamönnum.

„Þetta er svo mikill gleðigjafi í skammdeginu. Ég get ekki sagt ykkur hvað mér finnst dásamlegt að vakna á morgnana og setja jólatréð í samband. Þá strax byrjar dagurinn fallega.“
Aðventan er Selmu einstaklega gleðileg enda sjálf mikið jólabarn með öllu sem því fylgir. Það er því einkar viðeigandi að ástin hafi bankað upp á á jólunum en þann 28. desember fagna þau Selma og Tumi fjórum árum saman.
Er hann eins mikið jólabarn og þú?
„Nei, alls ekki. En ég er að vinna í virkri jólasmitun,“ segir Selma og hlær.
Jólabarn eins og mamma
Hún segir móður sína þó mikið jólabarn og hafi hún því alist upp við aðventuna fulla af töfrum með tilheyrandi jólabakstri, saumaskap, tónlist og jólateikningum.
Ég hef þetta frá henni og hef elskað jólin frá því ég man eftir mér. Það jókst þegar ég varð mamma sjálf, enda jólin hátíð barnanna og afskaplega gaman að upplifa þau í gegnum þau og með þeim.
Þó Selma sé vægast sagt snemma í tíðinni segir hún það ekki hafa tíðkast að skreyta svo snemma í hennar æsku. Hlutirnir voru gerðir eftir ákveðinni röð og reglu.

Á ennþá fyrsta jólaskrautið
„Aðventukransinn var það fyrsta sem fór upp, svo komu mandarínurnar, svo fékk maður að narta í nýbökuðu piparkökurnar, loftkökurnar, randalínurnar og kókostoppana hennar mömmu. Seríurnar fengu að fara í gluggana um miðja aðventu og jólakassinn með öllu fallega skrautinu tekinn upp seinni hluta aðventunnar.“
Eins og svo algengt var í þá tíð fór jólatréð ekki upp fyrr en á Þorláksmessu og segir Selma það hafa verið mikla töfraupplifun að fá að skreyta tréð.
Það var aldrei kveikt á trénu fyrr en klukkan sex á aðfangadag, þegar kirkjuklukkurnar í útvarpinu hringdu inn jólin. Það var alltaf mikil gleðistund.
Manstu eftir fyrsta jólaskrautinu þínu eða uppáhalds jólaskrautinu þínu þegar þú varstu barn?
„Já. Ég fékk gefins bleikan engil, stelpa í bleikum loðnum kjól til að hengja á tréð. Ég á hann ennþá og hlakka alltaf til að hengja hann á tréð mitt.“

Jólatréð upp í nóvember
Eins og áður var getið byrjaði Selma að skreyta heimilið sitt í lok október og viðurkennir hún að ekki séu þó allir fjölskyldumeðlimir eins jóla-peppaðir eins og hún sjálf.
„Ég veit að ég byrja fáránlega snemma að skreyta, fæ bágt fyrir hjá mörgum. Ég henti upp smá skrauti seinni hluta október og fékk að heyra: „mammmaaaaaaaaaa!“ frá báðum börnunum mínum.“
Jólatréð á heimilinu kom upp 22. nóvember sem hún segir samt sem áður ívið seinna en í fyrra.
Ég skreytti svo allt heimilið í síðustu viku því ég var með aðventuboð síðasta sunnudag og vildi hafa allt tilbúið. Þetta gleður auga mitt og hjarta allan daginn.
Endurnýjuð kynni við gamla vini
Selma segist laus við það að elta einhverja tískustrauma eða ákveðinn stíl þegar kemur að jólaskreytingum og hefur hún verið dugleg að sanka að sér nýjum jólamunum á ferðalögum sínum í gegnum árin.

„Ég hef lagt það í vana minn að kaupa jólaskraut í jólahúsinu á Akureyri (í raun á hvaða tíma árs sem er) og líka í Jólaþorpinu í Hafnarfirði þegar ég heimsæki það á aðventunni. Svo reyndar, þá leikstýrði ég erlendis í nokkuð mörg ár jólasýningunni Í hjarta Hróa hattar og var því stödd erlendis býsna oft á aðventunni. Þá keypti ég mér alltaf eitt skraut á jólatréð í hverju landi og á núna fallegt safn frá ýmsum löndum.“
Ég elska að taka upp jólaskrautið mitt á hverju ári því það er eins og að endurnýja kynnin við gamla vini.
Kveður jólaskrautið með trega
Eftir jólahátíðina eru margir meira en tilbúnir í það að pakka niður jólunum og kveðja skrautið í bili en í tilviki Jóla-Selmu er það aldeilis ekki raunin.
„Það er aldrei gleðistund á mínu heimili, finnst það alltaf frekar sorglegt og heimilið tómlegt á eftir.“
Ertu með einhverjar sérstakar jólahefðir tengdar mat?
Já, ég geri flottan morgunmat á aðfangadag og hef svo farið með börnunum mínum að keyra út pakka á aðfangadag. Það er stemning í því. Svo hlustum við á jólalög í bílnum og syngjum hástöfum.
Eins og hefð er fyrir í mörgum fjölskyldum kemur stórfjölskylda Selmu öll saman á jóladag og koma þá allir með eitthvað að borðinu.
„Það er aspassúpa, rjúpu tartalettur, ostar, síld, paté og þetta helsta. Við spilum Varúlf og förum svo og rennum okkur á snjóþotum ef það er snjór. Ef ekki þá förum við í göngutúr. Þetta er alltaf mjög skemmtilegt. Við erum fjórar systurnar, foreldrar okkar, makar og öll börnin okkar. Þannig að það er mikið fjör og mikið hlegið.“
Tilhlökkun fyrir fyrstu jólunum saman

Með breyttu fjölskyldumynstri verða oft á tíðum til nýjar hefðir en nú eru fjölskyldumeðlimir orðnir sex í heimili.
Það verður gaman að búa til okkar hefðir saman og ef ég þekki okkur rétt þá verður mikið spilað, við elskum það. Það er alltaf að minnsta kosti eitt spilakvöld á jólunum.
Finnst þér það áskorun að sameina fjölskyldur og hefðir?
„Það er auðvitað áskorun að sameina fjölskyldur með börnum, það vita allir sem það hafa reynt. Þess vegna vorum við ekkert að flýta okkur að flytja saman. Við fórum mjög hægt í sakirnar og lengi vel hittumst við bara aðra hvora viku þegar við vorum barnlaus. Við erum bara auðmjúk gagnvart þessu verkefni og reynum að nálgast það af kærleika, skilningi og umburðarlyndi.“
Selma segir jólin vissulega rómantísk en auðvitað fari það eftir aðstæðum hverju sinni og minni hún sig á það að vera þakklát á þessum tíma.
Jólin eru stundum rómantísk, stundum erfið, stundum full af gleði, stundum blendin sorg og stundum einmanaleika, því lífið er allskonar. Ég er þakklát fyrir allt góða fólkið í kringum mig og nýt þess mest að eyða aðventunni með þeim sem ég elska mest.
Hvernig verður aðfangadagskvöld?
„Það verður hamborgarhryggur í matinn og ef ég verð heppin og kemst yfir rjúpur þá langar mig líka að elda þær. Ég ætla svo að gera waldorf salat, sjóða mitt eigið rauðkál, nostra við rauðvínssósuna og gera brúnaðar kartöflur. Ekki má gleyma bökuðum perum og svo auðvitað gulu og grænu baununum. Svo gerum við einhvern geggjaðan desert og það verður gaman að prófa eitthvað nýtt.“
Hér fyrir neðan má hlusta á viðtal við Selmu í Bakaríinu á Bylgjunni á dögunum.
Jóla-Selma í Kulda á aðventunni
Líkt og hjá flestu tónlistarfólki er jólavertíðin ein sú stærsta en hjá Selmu er aðventan að þessu sinni örlítið með breyttu sniði.
„Jóla-Selma fær kannski ekki alveg að blómstra á aðventunni“, segir hún og hlær en sökum kvikmyndahlutverks í nýrri bíómynd þurfti hún að afþakka öll jóla-gigg í desember.

„En ég er alveg til í það að þessu sinni því að ég er að leika í kvikmynd sem heitir Kuldi sem er byggð á bók Yrsu Sigurðardóttur.
Þetta er eiginlega bara svona nett hrollvekja þannig að ég verð bara úti á landi í myrkri og kulda.
Myndin er tekin upp að hluta fyrir vestan á Fellsströnd og hófust tökur síðustu helgi. Selma leikur Lilju, forstöðukonu á upptökuheimili fyrir afbrotaunglinga, og segist hún hlakka mikið til þó svo að líklega verði ekki mikið um jóladýrð yfir þetta tímabil.
„Ég verð í tökum til 15. desember og það verður geggjað að fá að leika í alvöru thriller.“
Orðin viðkvæm með aldrinum
Myndin er leikstýrð af Erlingi Thoroddsen, eina íslenska kvikmyndaleikstjóranum sem hefur sérhæft sig í hrollvekjugerð, en á unglingsárum sínum segist Selma hafa verið mikill aðdáandi hrollvekja.
„Ég var búin með hilluna í Fákafeni og Videohöllinni. En í dag, ég get ekki horft á þetta. Held bæði fyrir augun og eyrun. Maður verður svo viðkvæmur með aldrinum,“ segir Selma og skellir upp úr.

Gefur út nýtt jólalag með Siggu Beinteins
Þrátt fyrir að missa svolítið af jólatónleikatíðinni kom ekki annað til greina hjá Selmu en að leggja sitt framlag til jólalagaspilunnar þetta árið og gaf því út nýtt jólalag með vinkonu sinni, söngkonunni Siggu Beinteins. Lagið er íslensk útgáfa af jólalagi Kelly Clarkson, Wrapped in Red.
Ég er búin að elska þetta lag frá því það kom út árið 2013. Svo var þetta uppáhalds jólalag mitt og dóttur minnar.
Í spilaranum hér fyrir neðan er hægt að hlusta á jólalagið Klædd í rautt sem frumflutt var í Bakaríinu á Bylgjunni.