Pieta hlaut milljón krónu jólastyrk N1 20. desember 2022 10:11 Þórunn Finnsdóttir tekur við styrknum úr hendi Hinriks Más Bjarnasonar, framkvæmdastjóra N1, og hópi starfsfólks fyrirtækisins. Pieta samtökin hlutu á föstudag 1 milljóna króna jólastyrk frá N1. Árlega velur starfsfólk fyrirtækisins góðgerðarmálefni til að styrkja en þetta er annað árið í röð sem Pieta samtökin verða fyrir valinu. Auk samtakanna valdi starfsfólk N1 að styrkja Fjölskylduhjálp Íslands, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og Mæðrastyrksnefnd Akraness fyrir þessi jól.
Þetta er fimmta árið í röð sem N1 ákveður að veita styrki til góðgerðarmála í stað þess að senda jólagjafir til samstarfsaðila og viðskiptavina. Kosning starfsfólksins fór fram á Relesys, smáforriti starfmanna N1, og hlaut Pieta yfirburðakosningu. Þórunn Finnsdóttir, fagstjóri hjá Pieta, veitti styrknum viðtöku i höfuðstöðvum N1 á Dalvegi í Kópavogi á föstudag. Þar þakkaði hún starfsfólkinu fyrir sýndan hlýhug og undirstrikaði mikilvægi styrksins fyrir starfsemi samtakanna. „Styrkur sem þessi mun gera okkur kleift að styðja enn betur við fræðslu- og forvarnarstarf Pieta. Samtökin, sem alfarið eru rekin fyrir sjálfsaflarfé, hafa vaxið hratt frá stofnun þeirra árið 2016 og það er ekki síst fyrir tilstuðlan frjálsra framlaga eins og þessara. Velvild starfsfólks N1 mun því koma að góðum notum og þökkum við þeim kærlega fyrir stuðninginn,“ segir Þórunn Finnsdóttir. Þyri Dröfn Konráðsdóttir, markaðsstjóri N1, segir veitingu jólastyrkja orðna órjúfanlegan stund á aðventunni hjá N1. „Það skapast alltaf mikil eftirvænting hjá starfsfólki okkar að heyra hvaða málefni hljóta jólastyrk það árið. Við setjum valið í hendur starfsfólks N1 um land allt sem ákvað að styrkja þessi fjögur samtök í ár, sem öll vinna ómetanlegt starf í íslensku samfélagi,“ segir Þyrí. Píeta samtökin voru stofnuð árið 2016 og sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða auk þess að styðja við aðstandendur. Frá apríl 2020 til desember 2020 varð 140 prósent aukning í þjónustu samtakanna og því ljóst að þörfin fyrir störfum þess er mikil í samfélaginu. Mæðrastyrksnefndir Reykjavíkur og Akraness aðstoða einstæðar mæður og feður, börn þeirra, öryrkja og eldri borgara. Einnig er neyðin mikil á heimilum sem hafa orðið fyrir atvinnumissi þar sem börn búa við krappari kjör. Fjölskylduhjálp Íslands veitir fjölskyldum og einstaklingum í neyð mataraðstoð ásamt því að bjóða upp á sölu á ódýrum fatnaði. Jólamánuðurinn sker sig alltaf úr þegar þúsundir einstaklinga ár hvert njóta aðstoðar til að halda gleðileg jól.
Mest lesið Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk Viðskipti innlent „Algjört siðleysi“ Neytendur Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Viðskipti innlent S4S-veldið tekur við Lindex Viðskipti innlent Nýtt gjald á bíómiða í vefsölu Neytendur Bíllinn þremur milljónum dýrari Viðskipti innlent Danir lengra komnir í að nýta spuna á vinnustöðum Atvinnulíf Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Viðskipti innlent Lindex lokað á Íslandi Viðskipti innlent Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Sýn tilnefnt sem Besta íslenska vörumerkið 2025 Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Skipta dekkin máli? Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Sjá meira