Lífið

Rapparinn Yung Nigo Drippin' með endur­komu

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Rapparinn Yung Nigo Drippin' gaf út plötuna Stjörnulífið á miðnætti.
Rapparinn Yung Nigo Drippin' gaf út plötuna Stjörnulífið á miðnætti. instagram

Á miðnætti kom út platan Stjörnulífið með rapparanum Yung Nigo Drippin'. Platan markar endurkomu rapparans en hann hefur látið lítið fyrir sér fara síðustu ár. Hann hefur legið undir feldi og unnið að plötunni frá árinu 2019.

Yung Nigo Drippin' er listamannsnafn hins tuttugu og sex ára gamla Brynjars Loga Árnasonar. Yung Nigo skaust fram á sjónarsviðið árið 2015 þegar hann gaf út plötuna Plús hús. Í kjölfarið gaf hann út plötunarnar Plús hús 2, Yfirvinnu og síðast EP plötuna Ungur ríkur flýgur vol. 1 árið 2019.

Sjá einnig: Hafnarfjörður eignast liðsmann í rappsenunni

Rapparinn hefur gjarnan verið kallaður „King of the goons“ en hann gaf einmitt út samnefnt lag árið 2019. Yung Nigo er dýrkaður og dáður af ungu kynslóðinni og voru því eflaust margir sem fögnuðu á miðnætti þegar platan Stjörnulífið lenti á Spotifly. Platan hefur verið í bígerð frá árinu 2019.

Þeir tónlistarmenn sem Yung Nigo fékk til liðs við sig á plötunni eru ekki af verri endanum en það eru nöfn á borð við Gísla Pálma, Birni, Izleif, Gvdjon, Siffa og ISSA. Drengirnir ætla að fagna plötunni með útgáfuteiti á Prikinu í kvöld klukkan níu.

Yung Nigo, Izleifur og Issi voru gestir Gústa B í Veislunni í gær. Þáttinn má hlusta á hér að neðan en viðtalið hefst á mínútu 49:38.


Tengdar fréttir

Uppáhalds lög Birgittu Lífar árið 2022

Árið 2022 var með sanni viðburðaríkt í tónlistinni og fjölbreytileikinn skein skært með ólíkum tónlistarstefnum sem náðu vinsældum. Lífið á Vísi tók púlsinn á nokkrum þekktum einstaklingum sem eiga það sameiginlegt að hafa mikinn áhuga á tónlist og báðum við þá að deila með lesendum hvað stóð upp úr hjá þeim í tónlistinni í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.