Lífið

Buðu pöbbum sínum í allsherjar veislu: „Pabbkviss, PabbPong og Pabbvision“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Pabbar Bandmanna tóku sig vel út í gylltu einkennisjökkum hljómsveitarinnar.
Pabbar Bandmanna tóku sig vel út í gylltu einkennisjökkum hljómsveitarinnar. Aðsend

Hljómsveitin Bandmenn hélt svokallað pabbakvöld síðastliðinn föstudag þar sem hljómsveitarmeðlimir buðu pöbbum sínum í allsherjar veislu með öllu tilheyrandi. Strákarnir hafa fengið mikil viðbrögð við þessum viðburði en blaðamaður tók púlsinn á þeim og fékk að heyra nánar frá þessu einstaka kvöldi.

„Hugmyndin að þessu kvöldi kviknaði út frá því að við fórum saman í pílu eftir gigg,“ segja þeir Hörður og Pétur, meðlimir Bandmanna. 

„Menn byrjuðu að ræða tónlistarsmekk fjölskyldumeðlima en þá kom í ljós að talsvert af pöbbum okkar halda mikið upp á hljómsveitina Jethro Tull. Út frá því kom upp sú hugmynd að bjóða öllum gömlu körlunum í allsherjar veislu með alvöru skemmtidagskrá. Við erum miklir stemningsmenn og fórum því all in fyrir kvöldið.“

Það var ýmislegt á dagskrá á þessu pabbakvöldi en má þar meðal annars nefna Pabbkviss, þar sem þemað var pabbar og tónlist, og PabbPong, sem er í raun eins og beer pong. Þá voru pabbarnir fengnir til að klæðast gylltum jökkum sem eru eins konar einkennisbúningur Bandmanna þegar þeir koma fram. Hörður og Pétur segja að þrátt fyrir að feðurnir séu rúmlega þrjátíu árum eldri en þeir hafi jakkarnir „smellpassað“. 

Bandmenn og feður lögðu allt í alvöru stuðkvöld.Aðsend

„Lagalistar pabbanna voru svo látnir rúlla allt kvöldið en hver og einn pabbi fékk að velja þrjátíu mínútur af lögum fyrir playlistann. Pabbarnir fengu goodie bag þar sem var að finna örtrefjaklút, bílavörur, sokka og derhúfu með lógói kvöldsins ásamt mörgum öðrum nytsamlegum varningi. Kvöldið endaði svo á Pabbvision þar sem leikið var á hljóðfæri og sungið fram á rauða nótt.“

Lógó kvöldsins, Pabbinn '23.Aðsend

Það er mikið um að vera hjá Bandmönnum sem spila nánast allar helgar.

„Við ákváðum að taka fyrstu helgi ársins í feðgafjörið þar sem við erum nánast uppbókaðir fram í mars.“

Bandmenn á sviði.Aðsend

Kvöldið var svo vel heppnað að þeir hafa ákveðið að halda svipað partý að ári liðnu.

„Veislan lukkaðist alveg gífurlega vel en við erum búnir að lofa alveg eins veislu að ári nema þá fá mæður okkar dúndur partý.“

Hér má sjá skemmtilegar feðgamyndir frá kvöldinu:

Hörður Bjarkason og Bjarki Harðarson.Aðsend

Franz Ploder Ottósson og Ottó Sveinn Hreinsson.Aðsend

Finnbogi Ingólfsson og Pétur Finnbogason.Aðsend

Unnsteinn Jónsson og Brynjar I. Unnsteinsson.Aðsend

Andri Már Magnason og Magni Friðrik Gunnarsson.Aðsend

Helgi Einarsson og Einar Olgeir Gíslason.Aðsend

Eiríkur Magnússon og Jón Birgir Eiríksson.Aðsend

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.