Lífið

Inga Auð­björg og Helgi Hrafn skilja

Atli Ísleifsson skrifar
Inga Auðbjörg K. Straumland og Helgi Hrafn Gunnarsson.
Inga Auðbjörg K. Straumland og Helgi Hrafn Gunnarsson. Aðsend/Vísir/Vilhelm

Inga Auðbjörg K. Straumland, formaður Siðmenntar, og Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, eru skilin að borði og sæng.

Greint er frá þessu á mbl.is. Þau Inga Auðbjörg og Helgi Hrafn trúlofuðust í Þýskalandi árið 2015 og giftu sig ári síðar. Saman eiga þau einn son.

Inga Auðbjörg hefur verið formaður Siðmenntar frá apríl 2019, en hún hafði þá verið athafnastjóri hjá félaginu um nokkurt skeið.

Helgi Hrafn er forritari en sat á þingi fyrir Pírata á árunum 2013 til 2016 og 2017 til 2021. Hann var þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.