Nýr framkvæmdastjóri SVFR Karl Lúðvíksson skrifar 2. febrúar 2023 09:58 Ingimundur Bergson nýr framkvæmdastjóri SVFR tekur hér við lyklum frá Sigþóri Gunnlaugssyni fráfarandi framkvæmdastjóra Síðasti vinnudagur Sigurþórs Gunnlaugssonar sem framkvæmdastjóra SVFR var í gær.
Hann heldur á vit nýrra ævintýra eftir um fjögurra ára starf og óskar SVFR honum alls hins besta í nýjum verkefnum. Ingimundur Bergsson tekur við starfi framkvæmdastjóra SVFR, en hann hefur undanfarin misseri verið skrifstofustjóri félagsins og gegnt lykilhlutverki í sölu og þjónustu við félagsmenn. „Það er mikil eftirsjá í Sissó, sem skilur við félagið í góðri stöðu eftir mikla vinnu undanfarin ár. Hann hefur tekist á við krefjandi verkefni af lipurð og festu, treyst stöðu SVFR og síðustu tvö rekstrarár eru þau bestu í sögu félagsins. Ég vil færa honum mínar innilegustu þakkir fyrir frábært samstarf og óska honum alls hins besta,“ segir Jón Þór Ólason, formaður SVFR. Ingimund þekkja félagsmenn SVFR og aðrir veiðimenn vel. Hann er viðskiptafræðingur að mennt og hefur mikla reynslu úr veiðiheiminum. Hann er upphafsmaður og stofnandi Veiðikortsins, hefur komið að útgáfu veiðitímarita um árabil og þekkir vel til reksturs SVFR. „Ingimundur er mikill fengur fyrir SVFR og ég vil bjóða hann velkominn til starfa sem framkvæmdastjóra félagsins. Hann býr að gríðarlegri reynslu, þekkingu og þjónustulund sem mun nýtast félagsmönnum vel. Hann hefur sett mikið mark á skrifstofu SVFR á undanförnum árum og ég hlakka til að sjá hann í nýju hlutverki,“ segir Jón Þór.
Stangveiði Mest lesið Rithöfundar á Rangárbökkum Veiði Stórlaxar síðustu daga Veiði Ytri Rangá yfir 4.000 laxa Veiði 30 laxa holl í Stóru Laxá Veiði 300 laxa vika í Selá Veiði Góð byrjun í Haffjarðará Veiði Fréttir af svæðum SVFR Veiði 20-30 laxa dagar í Eystri Rangá Veiði Sala veiðileyfa góð þrátt fyrir aflabrest í fyrra Veiði Vatnaveiðin að komast í góðan gír Veiði