Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði á bilinu tvö til sjö stig yfir daginn, en í kringum frostmark um landið norðaustanvert.
„Það verður áfram hæglætis veður á morgun. Dálítil rigning eða slydda með köflum norðanlands, en yfirleitt þurrt syðra. Fremur milt.
Á sunnudag snýst svo í norðaustanátt með éljum um landið norðan- og austanvert og kólnar í veðri.“
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag: Hæg vestlæg eða breytileg átt og stöku skúrir eða él, en yfirleitt þurrt sunnantil. Hiti 0 til 7 stig. Dálítil slydda norðanlands um kvöldið.
Á sunnudag: Gengur í norðaustan 5-13 m/s. Dálítil él um landið norðanvert og einnig syðst á landinu síðdegis, annars úrkomulítið. Kólnar í veðri.
Á mánudag: Norðan og norðaustan 5-13 og dálítil él, en léttskýjað á Suður- og Vesturlandi. Frost 2 til 9 stig.
Á þriðjudag: Norðan 8-15 og éljagangur, en þurrt að kalla sunnan heiða. Kalt í veðri.
Á miðvikudag og fimmtudag: Köld norðaustlæg átt og dálítil él, en yfirleitt þurrt sunnanlands.