Nýjum útgáfum pylsulagsins rignir yfir Skúrinn SS 10. mars 2023 16:04 Lagasamkeppni SS fer heldur betur vel af stað en þar er leitað að nýrri útgáfu af SSpylsu-laginu gamla og góða. Pylsulögum rignir inn og dómnefndar bíður erfitt hlutverk. Þáttaröðin Skúrinn mun fjalla um úrslitalögin hér á Vísi. „
Við fengum yfir 130 lög í keppnina. Það er ótrúlega mikið í gangi í íslensku tónlistarlífi og greinilega af nógu að taka. Lögin eru líka svo fjölbreytt, popp, rokk dansútgáfur og margir eru að bæta við lagið, sem er mjög skemmtilegt,“ segir Hafþór Úlfarsson, deildarstjóri í markaðsdeild SS en hann situr í dómnefnd ásamt Sölku Valsdóttur tónlistarkonu og Árna Beinteini Árnasyni leikara. Hafþór Úlfarsson deildarstjóri í markaðsdeild SS er hæstánægður með viðtökurnar í lagakeppninni Þeirra bíður því erfitt verk. Aðeins fimm lög komast áfram í úrslit og verða bæði lögin og höfundar þeirra kynnt í Skúrnum, sérstakri þáttaseríu Kristjáns Kristjánssonar leikstjóra, sem sýnd verður hér á Vísi. Hver þáttur verður tileinkaður einum listamanni eða hljómsveit og farið yfir hvernig lagið þeirra varð til. Þórdís Björk Þorfinnsdóttir tónlistar- og leikkona, sem leiðir þættina og Árni Beinteinn Árnason leikari, sem situr í dómnefnd. Auk þess að semja og senda inn nýja útgáfu af SS-pylsulaginu átti að senda inn frumsamið lag og eru vegleg verðlaun í boði fyrir bestu lögin. Tvær milljónir króna eru í verðlaun fyrir besta útgáfuna af SS pylsu-laginu, ein milljón króna fyrir annað sætið og fimmhundruð þúsund fyrir þriðja sætið. Fyrir besta frumsamda lagið er ein milljón króna í verðlaun. Hafþór er hæstánægður með lagafjöldann. „Við vissum ekki hvernig viðbrögð við myndum fá um nýja útgáfu, þetta er lag sem hefur verið lengi í gangi og fólk þekkir vel. Við gerðum reyndar nýja útgáfu af laginu fyrir tveimur árum síðan sem fékk frábærar viðtökur svo við ákváðum að prófa núna að leyfa hverjum sem er að senda inn. Það má vel vera að Skúrinn verði að árlegum viðburði, við fengum í það minnsta nokkra tölvupósta þar sem stungið var upp á því,“ segir Hafþór. Býr til sjónvarpsþáttaröð um nýtt SS pylsu-lag
Skúrinn Mest lesið Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Viðskipti erlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira