Varasamt ferðaveður austanlands en bjart suðvestantil Atli Ísleifsson skrifar 27. mars 2023 07:11 Það dregur hægt úr vindi eftir hádegi og úr úrkomu seinnipartinn á landinu. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir norðlægri átt í dag, víða fimm til þrettán metrum á sekúndu en þrettán til tuttugu um suðaustanvert landið. Reikna má með éljum fyrir norðan, snjókomu austantil og skafrenningi á suðaustanlands og því er enn varasamt ferðaveður á þeim slóðum.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði yfirleitt bjart veður suðvestantil. Það dragi hægt úr vindi eftir hádegi og úr úrkomu seinnipartinn á landinu. Búist er við frosti, núll til átta stigum, en rétt yfir frostmarki við suður- og suðvesturströndina yfir daginn.Ful viðvörun er í gildi á Austfjörðum til klukkan 15. „Það verður austanátt á morgun, 5-13 en 13-18 syðst á landinu. Dálítil él fyrir austan en annars þurrt að kalla. Smám saman þykknar upp þegar líður á daginn en úrkoma sem fylgir kemur ekki fyrr en aðfaranótt miðvikudags. Frá miðvikudegi eru austlægar áttir og rigning eða snjókoma öðru hvoru og talsverð eða mikil úrkoma um landið suðaustanvert. Hlýnandi veður,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Austan 5-13 m/s, en 13-18 við suðurströndina. Dálítil él víða á landinu, en úrkomulaust að kalla á Vesturlandi. Fer að snjóa sunnanlands um kvöldið. Frost víða 0 til 8 stig, mildast syðst. Á miðvikudag: Austanátt, víða 10-15 og snjókoma eða slydda, en 15-20 og rigning syðst, úrkomusamast suðaustanlands. Hiti víða 0 til 4 stig, en vægt frost fyrir norðan. Á fimmtudag: Austan 10-18 og rigning eða snjókoma með köflum, talsverð eða mikil úrkoma austanlands en úrkomuminna vestantil. Hiti 2 til 8 stig en vægt frost norðaustantil. Á föstudag: Austlæg átt með rigningu, einkum suðaustantil og mildu veðri en slydda eða snjókoma með hita um frostmark norðaustanlands. Á laugardag: Minnkandi suðaustanátt og rigning suðaustanlands en stöku skúrir annars staðar. Milt í veðri. Á sunnudag: Útlit fyrir suðlæga átt. Dálítil væta en bjart að mestu austantil. Hiti yfirleitt 2 til 6 stig en um frostmark norðaustanlands.
Veður Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira