Áfram mikil úrkoma austantil og hiti að tíu stigum Atli Ísleifsson skrifar 31. mars 2023 07:19 Það snýst í suðvestanstrekking með skúrum eða sluddéljum á morgun, en rignir áfram á Austfjörðum fram að hádegi að minnsta kosti. Vísir/Vilhelm Áfram má reikna með austlægri átt og talsverðri eða mikilli úrkomu á austanverðu landinu framan af morgni. Yfirleitt verður rigning, en slydda eða snjókoma á norðanverðum Austfjörðum.
Appelsínugular og gular viðvaranir vegna asahláku og snjókomu eru í gildi á Austfjörðum og fylgjast sérfræðingar og viðbragðsliðar því náið með ástandi snjóalaga þar. Óvissustig vegna snjóflóða- og krapaflóðahættu er í gildi á Austfjörðum og mörg hús hafa verið rýmd. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það verði þurrt að mestu á Norðurlandi, en dálítil væta með köflum í öðrum landshlutum. Hiti verður víða fimm til tíu stig. „Snýst í suðvestanstrekking með skúrum eða sluddéljum á morgun, en rignir áfram á Austfjörðum fram að hádegi að minnsta kosti. Léttir smám saman til á Norður- og Austurlandi og kólnar í veðri. Dregur síðan enn úr vindi og úrkomu á sunnudag,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðlæg átt, 8-15 m/s og skúrir eða slydduél, hvassast við suðvesturströndina, en rigning eða slydda á Suðausturlandi og Austfjörðum fram eftir degi. Hiti 0 til 7 stig, svalast inn til landsins. Á sunnudag: Suðvestan 8-13 m/s og skúrir eða él, en þurrt að kalla á Norður- og Austurlandi. Hægari og úrkomuminni síðdegis, en fer að rigna suðaustanlands seint um kvöldið. Hiti nærri frostmarki. Á mánudag: Gengur í hvassa austan- og suðaustanátt með talsverðri rigningu, en sums staðar slyddu eða snjókomu fyrir norðan. Hlýnandi veður. Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag: Suðlæg eða breytileg átt og víða skúrir eða él, en yfirleitt þurrt norðaustanlands. Kólnar aftur í veðri.
Veður Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira