Tork gaur: Kraftmikill fjölskyldujepplingur Bjarki Sigurðsson skrifar 18. apríl 2023 07:01 Porsche Cayenne Coupe bíllinn sem James Einar prófar í nýjasta þætti Tork gaurs. Vísir/James Einar Bílaþættirnir Tork gaur halda áfram á Vísi í dag. Í sjötta þætti annarrar þáttaraðar er Porsche Cayenne Coupe tekinn fyrir.
James Einar Becker er stjórnandi þáttanna, Tork gaurinn sjálfur. Munurinn á Porsche Cayenne Coupe og venjulegum Porsche Cayenne er helst að hann er mun sportlegri. Minna pláss er í skottinu en bíllinn sjálfur er kraftmeiri. Hægt er að sjá þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan, en sjá má fyrri þætti hér. Klippa: Tork gaur - Porsche Cayenne Coupe „Bíllinn er aðeins mýkri og það er meiri tilfinning í honum þegar þú ert að keyra hann. Þó svo að þú sitjir hátt uppi í þessum bíl og horfir yfir þá er ekki eins og maður vaggi um eins og á trukki. Hann er nógu stífur til að hægt sé að hafa gaman þegar það er verið að keyra,“ segir James um bílinn. James segir Porsche þekkja sína viðskiptavini mjög vel. Til að mynda er stærsti mælirinn í mælaborðinu ekki hraðamælirinn, heldur snúningsmælirinn. Það sé það sem eigendur bílanna vilja sjá.
Tork gaur Mest lesið Árásarmaðurinn ölvaður Íslendingur Innlent Ráðist á rútubílstjóra og vegfarendur yfirbuguðu árásarmanninn Innlent Hættu leit eftir þrjá tíma að þeim sem féll útbyrðis úr Norrænu Erlent „Samfélagsleg ábyrgð þessa fyrirtækis virðist ekki vera nein“ Innlent Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Innlent Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Innlent Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Innlent Ekki gagnlegt að stilla fyrirtækjum upp gegn starfsfólki Innlent Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Innlent Sæta lögreglurannsókn vegna níðsöngva um ísraelska herinn Erlent