Fremur kalt loft yfir landinu fram yfir helgi Atli Ísleifsson skrifar 25. apríl 2023 07:15 Hiti á landinu verður eitt til sex stig. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir fremur köldu lofti yfir landinu í dag og að það verði þannig fram að helgi hið minnsta.
Á vef Veðurstofunnar segir að austlæg eða norðlæg átt ríkjandi. Yfirleitt verði úrkomulítið, en líkur á smá úrkomu á víð og dreif. Mestar líkur á að úrkoma sem fellur sunnantil á landinu verði í formi rigningar eða skúra, en að næturlagi gæti þetta farið yfir í slyddu eða dálitla snjókomu. Fyrir norðan og austan en loft allmennt kaldara og sú úrkoma sem þar fellur verður líkast til á föstu formi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Hiti á landinu verður eitt til sex stig, en víða næturfrost og kaldast í innsveitum norðaustantil. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag og fimmtudag: Norðlæg átt, 3-10 m/s og skúrir eða dálítil él á austanverðu landinu og með suðurströndinni, en annars bjart með köflum. Víða vægt frost, en hiti að 6 stigum suðvestantil að deginum. Á föstudag: Heldur hvassari norðlæg átt, vægt frost og skýjað á norðanverðu landinu, en lengst af þurrt. Bjartviðri sunnan heiða og frostlaust að deginum. Á laugardag: Norðanátt og éljagangur á norðanverðu landinu, einkum norðaustanlands, en annars bjart með köflum og áfram svalt í veðri. Á sunnudag: Norðaustanátt. Dálítil él fyrir norðan en þurrt syðra. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Útlit fyrir svala en hæga austlæga átt og yfirleitt þurrt í veðri.
Veður Mest lesið Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Íranir enn vígreifir Erlent „Höfum ekki unnið nóg“ Erlent Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Innlent Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Innlent Vaxandi ótti við langvarandi átök Erlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Fleiri fréttir Færð geti víða spillst hratt Él og slydduél í dag og önnur lægð á morgun Eldingu laust niður á höfuðborgarsvæðinu Gul viðvörun og enn líkur á eldingum Varað við þrumuveðri með tíðum eldingum Kröpp lægð yfir landinu og úrkoman blönduð Gular veðurviðvaranir í kortunum Köldu lofti beint til landsins Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Ört dýpkandi lægð á leiðinni og appelsínugular viðvaranir Appelsínugul viðvörun á morgun Vara við stórhríð á Austurlandi Snjókoma víða en bjart sunnan heiða Væta sunnantil og töluverð hláka í höfuðborginni Hvetja fólk til að fara fyrr heim vegna veðurs Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu vegna snjókomu Snjókoma á höfuðborgarsvæði í dag og á morgun Úrkomusvæði með snjókomu fer yfir vesturhelming landsins Gular veðurviðvaranir á Austurlandi Snýst í norðanátt og snarpar hviður austantil Útlit fyrir lægðagang og umhleypinga Hvöss austanátt fylgir alldjúpri lægð í dag Gul veðurviðvörun á Suðausturlandi Hitinn að skríða yfir frostmark sunnan heiða Herðir á frosti í kvöld Él og snjókoma norðan- og austantil Snjókoman náði ekki yfir Hellisheiðina Útlit fyrir hríðarbyl á Suðurlandi Draga kalt heimskautaloft yfir landið næstu daga Vara við snörpum vindhviðum Sjá meira