Lífið

Borðskreytingar sem hægt er að borða

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vala Matt fékk allt það helstu í tískunni beint í æð í nýjasta þætti af Íslandi í dag.
Vala Matt fékk allt það helstu í tískunni beint í æð í nýjasta þætti af Íslandi í dag.

Nú þegar veislur eru allsráðandi skellti Vala Matt sér út og skoðaði ódýr og smekkleg veislutrix.

Ljósmyndarinn og listakonan fjölhæfa Áslaug Snorradóttir er alltaf með ævintýralegar og frumlegar hugmyndir fyrir veislur enda einn flottasti veislu og matarhönnuður landsins.

Í Íslandi í dag sýndi hún nokkrar ótrúlegar borðskreytingar sem síðan er hægt að borða og eru engu líkar.

Stílistinn og töffarinn Þórunn Högna útbýr veisluborð með flottum skreytingum gerðum úr marengs sem einnig er hægt að borða í veislunni.

Vala fékk einnig að sjá mjög einfaldar hárgreiðslur sem hægt er að gera auðveldlega heima. Hárgreiðslu meistararnir Sigurveig Grétarsdóttir og Eyrún Ír Hafsteinsdóttir fara yfir greiðslurnar í innslaginu hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.