„Eurovision hátíðin er að mínu mati hið fullkomna kvöld fyrir fjölskyldu og vini að sitja saman fyrir framan sjónvarpið og gæða sér á ljúffengum veitingum. Það gerist ekki betra,” segir Eva en hún starfar sem markaðs -og upplifunarstjóri Hagkaups.
„Ég er mjög hrifin af ídýfum og eðlum og ætla svo sannarleg að bjóða upp á klassíska eðlu með nachos flögum í kvöld. Svo rennur mér blóðið til skyldunnar að minnast á að fyrir þá sem vilja stytta sér leið framleiðum við hjá Hagkaup, sérstaklega fyrir þessa helgi, tilbúnar eðlur og cheddarostasósu sem þarf einungis að hita. Einfaldara verður það ekki og hlýtur öll mín bestu meðmæli.”
Uppskriftirnar sem Eva deilir hér lýsir hún sem miklum stemningsmat. „Þessa rétti geri ég aftur og aftur. Annars vegar nachos fjall með kjúklingi og rjómaostasósu og hins vegar klístraða vængi með gráðaostasósu. Hvoru tveggja brjálæðislega gott og mikill stemningsmatur. Uppskriftirnar birtust fyrst í bókinni minni Í eldhúsi Evu.

Nachos-fjall með kjúklingi og heitri rjómaostasósu
Stökkar nachos flögur með ljúffengri rjómaostasósu og allskyns gúmmilaði, fullkominn
réttur til þess að deila með öðrum. Eitt sinn smakkað, þið getið einfaldlega ekki hætt!
300 g foreldað kjúklingakjöt, má vera hvaða kjöt sem er á fuglinum
8 tortillavefjur eða einn stór poki af tortilla flögum ca. 300 g
3 – 4 msk olía sem hentar vel til steikingar
200 g rjómaostur
3 dl salsasósa
2 dl rifinn cheddar ostur
1 dl rifinn mozzarellaostur
8 kirsuberjatómatar
½ laukur
Handfylli kóríander
Safi úr hálfri límónu
2 vorlaukar
1 rautt chili
Aðferð:
1. Stillið ofninn á 180°C.
2. Skerið tortillavefjur í litla bita. Hitið olíu á pönnu, steikið tortillavefjurnar í örfáar
mínútur eða þar til vefjurnar eru orðnar stökkar og gullinbrúnar.
3. Kryddið með smá salti þegar þær eru nýsteiktar.
4. Setjið stökku tortillavefjurnar í eldfast mót, skerið kjúklinginn mjög smátt og
setjið yfir ásamt rifnum osti.
5. Bakið við 180°C í nokkrar mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður.
6. Útbúið einfalt salsa með því að skera tómata, lauk og kóríander afar smátt.
Blandið saman í skál með góðri ólífuolíu og safa úr hálfri límónu.
7. Hitið rjómaost og salsasósu í skál þar til blandan er orðin silkimjúk og auðvelt
að hella henni yfir réttinn þegar hann kemur út úr ofninum.
8. Setjið heimatilbúna salsað einnig yfir réttinn ásamt smátt skornu chili og
vorlauk.
9. Saxið niður kóríander og dreifið yfir réttinn.
10. Berið strax fram og njótið!

Klístraðir vængir með gráðostasósu
Klístraðir kjúklingavængir sem maður fær hreinlega ekki nóg af – tilvalið að bjóða
vinunum í vængi yfir góðum íþróttaleik í sjónvarpinu!
Vængir með gráðostasósu
15 – 20 kjúklingavængir
3 msk hveiti
1 tsk salt
1 tsk pipar
1 tsk paprikukrydd
2 – 3 msk hot wing buffalo sósa að eiga vali
Aðferð:
1.Setjið kjúklingavængi, hveiti og krydd í plastpoka og hrisstið duglega eða þannig að
hveiti þekji kjúklingavængina mjög vel.
2.Setjið vængina á pappírsklædda ofnplötu og bakið í ofni við 180°C í 50 – 55 mínútur.
Snúið vængjunum nokkrum sinnum á meðan þeir eru í ofninum.
Eftir þann tíma setjið þá sósu yfir vængina og setjið aftur inn í 2 -3 mínútur, eða þar til
vængirnir eru stökkir og ljúffengir. Berið þá fram með gráðostasósu og sellerí.
Gráðostasósa
200 g sýrður rjómi
3 msk majónes
safi úr hálfri sítrónu
100 g gráðostur
salt og nýmalaður pipar
Aðferð:
1. Setjið allt í skál og maukið með töfrasprota eða setjið í matvinnsluvél. Maukið
þar til sósan verður silkimjúk, kryddið til með salti og pipar.