Grunnrekstur Kviku verið á pari eða umfram spár síðustu fjórðunga
![Marinó Örn Tryggvason, bankastjóri Kviku, segir það um margt vera krefjandi verkefni að upplýsa fjárfesta og aðra markaðsaðila um samspil afkomu af grunnrekstri og fjárfestingastarfsemi.](https://www.visir.is/i/915DFCB31E946877010079C5F5E1B7039BB71A20C9746FFAC7E1643937CF6871_713x0.jpg)
Hagnaður af grunnrekstri Kviku banka, sem undanskilur fjárfestingastarfsemi TM, var um 40 prósentum yfir áætlunum á fyrsta fjórðungi þessa árs og nam tæplega 1.200 milljónum króna. Að sögn forstjóra félagsins hefur grunnreksturinn gengið vel, sem endurspeglast í sífellt meiri umsvifum, en nýjar upplýsingar sem bankinn hefur birt sýna að hann hefur verið í samræmi við eða umfram spár frá því í ársbyrjun 2022.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/9792C79B7896AF553779CED88C1CA80D655705B406BA74BBBD17733FCB743328_308x200.jpg)
Moody's íhugar að hækka lánshæfismat Kviku í ljósi samrunaviðræðna
Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Moody's tilkynnti í dag að formlega hefði verið tekið til skoðunar að hækka lánshæfismat Kviku í kjölfar þess að ákveðið hefur verið að hefja viðræður um samruna Kviku og Íslandsbanka.