Lífið

Gígja Marín átti besta frumsamda lagið

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Gígja Marín tekur við hamingjóskum og blómvendi frá Hafþóri Úlfarssyni, deildarstjóra markaðsdeildar SS.
Gígja Marín tekur við hamingjóskum og blómvendi frá Hafþóri Úlfarssyni, deildarstjóra markaðsdeildar SS.

Gígja Marín Þorsteinsdóttir bar sigur úr býtum fyrir besta frumsamda lagið í þættinum Skúrinn á Vísi. Undanfarnar vikur hafa sex tónlistarflytjendur verið kynntir sem kepptu um bestu nýju útgáfuna af SS pylsulaginu og um besta frumsamda lagið. Skúrinn eru kostaðir þættir af SS.

Fyrir sigurinn hlaut hin tvítuga Gígja Marín eina milljón króna. 

„Ég er auðvitað himinlifandi með niðurstöðuna,“ segir Gígja Marín sigurreif í tilkynningu frá SS. Aðspurð segist hún hafa verið að vinna að tónlist í tvö til þrjú ár en sigurlagið, I know, er fyrsta lagið sem hún gefur út ein. 

„Ég var í unglingahljómsveit fyrir nokkrum árum sem gaf út eitt lag,“ bætir Gígja við brosandi og segir planið nú vera að hella sér út í tónlistina af fullum krafti. 

Hafþór Úlfarsson, deildarstjóra markaðsdeildar SS, segir að Gígja Marín sé lifandi dæmi um það sem Skúrnum var ætlað að gera.

„Planið var að draga lítt þekkt tónlistarfólk út úr Skúrnum og fram í sviðsljósið þar sem við hin fáum að njóta hæfileika þeirra. Gígja Marín er sannarlega verðugur sigurvegari í þessum hluta keppninnar og lagið frábært.“

Þrjár útgáfur í höndum þjóðarinnar

Keppninni um besta frumsamda lagið er þar með lokið en keppnin um bestu útgáfu SS pylsulagsins mun halda áfram fram í ágúst. 

„Þjóðin, ásamt dómnefnd, hefur nú valið þrjár útgáfur af pylsulaginu til áframhaldandi þátttöku. Í sumar munum við því sýna þrjár mismunandi útgáfur af sömu auglýsingunni fyrir SS pylsur, hver með mismunandi útgáfu af laginu. Þjóðin kýs svo sína uppáhalds útgáfu sem verður kynnt um miðjan ágúst,“ segir Hafþór Úlfarsson í tilkynningu. 

Sigurvegararnir fá í sinn hlut tvær milljónir króna. 


Tengdar fréttir

Pönk, rapp eða popp í nýju pylsulagi SS

Undanfarnar vikur hafa lesendur Vísis kynnst sex flytjendum í þáttunum Skúrinn á Vísi sem keppa um bestu nýju útgáfuna af SS pylsulaginu og um besta frumsamda lagið.  

Fékk Idol söngvara í lið með sér

Seinni umferð Skúrsins hófst í síðustu viku en í þáttunum keppa sex flytjendur um bestu nýju útgáfuna af SS pylsulaginu auk þess sem keppt er um besta frumsamda lagið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.