Fjallar um eigið tilfinningalíf og krísur Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 17. júní 2023 17:01 Anna Róshildur notast við listamannsnafnið Róshildur. Hún var að senda frá sér lagið Fólk í blokk (v2,3). Aðsend Tónlistarkonan Róshildur var að senda frá sér lagið Fólk í blokk (v2,3) en lagið var í dag kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM957.
Lagið er hluti af EP plötu sem er væntanleg í næsta mánuði. Róshildur fékk að láni texta Ólafs Hauks Símonarsonar um fólkið í blokkinni, úr samnefndum söngleik, og setur hann í nýjan búning í laginu. Blaðamaður ræddi við Róshildi, sem heitir fullu nafni Anna Róshildur Benediktsdóttir Bøving. Hægt er að hlusta á lagið í spilaranum hér að neðan: Klippa: Róshildur - Fólk í blokk (v2,3) Innblástur frá uppáhalds plötunni „Fyrir rúmlega þremur árum var ég oft að leika mér að því að taka texta sem mér þótti skemmtilegir eða fallegir og spinna nýjar laglínur og útsetningar af þeim. Geisladiskurinn Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk var uppáhalds platan mín sem barn svo einn daginn varð titillagið fórnalamb þessara tilrauna hjá minna. Úr því kom eins konar kór útsetning sem svo bara fékk að bíða í skúffunni.“ Einn daginn ákvað Róshildur svo að skoða lagið aftur. „Þá skellti ég þessu inn í forritið Ableton og fór að byggja syntha í kringum raddirnar. Upprunalegu raddirnar má enn má heyra í introi, millikafla og outroi. Svo nú þremur árum seinna er ég að setja saman lítið verk í formi EP plötu sem fjallar að mestu um mitt eigið tilfinningalíf og krísur. Þá allt í einu var ekki annað hægt en að hafa þetta lag með. Það dregur saman hin lögin og setur þau í samhengi. Að við búum öll í sömu blokk? Þetta lag er dálítil tragíkómík. Textinn er fyndinn en þegar að hann er settur í svona melankólískan hljóðbúning verður hann dramatískur.“ Það er ýmislegt spennandi á döfinni hjá þessari upprennandi tónlistarkonu. „Fyrst og fremst ætla ég að koma EP plötunni út. Ég er mjög spennt að koma þessu frá mér og út í raunveruleikann. Í sumar flyt ég efnið svo á sviði, til dæmis á hátíðunum LungA á Seyðisfirði og Útkalli á Flateyri. Ég hlakka mikið til að þjálfa framkomuvöðvann og láta lögin lifna við á sviði.“ Hér má hlusta á Róshildi á streymisveitunni Spotify. Róshildur er bæði tónlistarkona og dansari en hér leikur hún listir sínar fyrir umslag á laginu Fólk í blokk.Aðsend Käärijä á toppnum Finnski Eurovision söngvarinn Käärijä trónir aftur á toppi Íslenska listans á FM með hið gríðarlega vinsæla lag Cha Cha Cha. Þá stekkur Diljá upp um átta sæti á milli vikna og situr nú í öðru sæti með lagið sitt Crazy. Emmsjé Gauti er hástökkvari vikunnar á Íslenska listanum en Þjóðhátíðarlagið hans Þúsund hjörtu er komið í áttunda sæti listans. Lög Íslenska listans: Íslenski listinn á Spotify:
Íslenski listinn FM957 Tónlist Tengdar fréttir „Hamingjan er hugarástand sem er jafngilt hvort sem það eru skin eða skúrir“ „Lagið fjallar um hvernig það er í okkar höndum að hafa gaman af hlutum, sama þó að eitthvað leiðinlegt komi upp á,“ segir hljómsveitin Celebs, sem var að senda frá sér lagið Bongó, blús & næs. Lagið var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM957 í dag. 10. júní 2023 17:01 Lætur ekkert stoppa sig núna „Ég ætla bara að leggja allt til hliðar og setja alla orkuna mína í að geta gert það sem mig langar, sem er að verða tónlistarkona og leikkona,“ segir Eurovision farinn Diljá Pétursdóttir, sem sendi nýlega frá sér lagið Crazy. Lagið situr í tíunda sæti Íslenska listans á FM en blaðamaður ræddi við hana um lagið. 3. júní 2023 17:00 Finnska Eurovision stjarnan stefnir á toppinn Finnska Eurovision stjarnan Käärijä situr í öðru sæti Íslenska listans á FM í þessari viku með lagið Cha Cha Cha. Hann stekkur upp um sex sæti á milli vikna og stefnir ótrauður á toppinn. 27. maí 2023 17:01 Lærði söng hjá Frikka Dór og á nú hittara með honum Rapparinn Daniil situr í fjórða sæti Íslenska listans á FM með nýtt lag sem ber heitið Aleinn. Með honum á laginu er enginn annar en Friðrik Dór en Daniil var einungis níu ára gamall þegar hann kynntist Frikka, í gegnum söngtíma. 22. apríl 2023 17:00 Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Menning Fleiri fréttir Space Odyssey opnar á nýjum stað Dr. Gunni spyr hvort það sé ekki bara búið að vera gaman Afhjúpað á hvaða dögum böndin spila á Airwaves Reyna að eyða minningum um hvort annað í sturluðum dansi Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið „Þetta er sem betur fer ekki upp á líf og dauða“ Ævintýrin hófust þegar hann hafnaði Juilliard Enginn súr í sætu teiti í Ásmundarsal „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Rokkþyrstir geta tekið gleði sína á ný Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið Frumsýning á Vísi: Landsliðsmaður gefur út lag með pabba sínum Taylor Swift jafnaði met Beyoncé á VMA Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest Sáu ekki fyrir sér vinsældirnar en fagna nú 36 árum Sergio Mendes höfundur Mas Que Nada látinn Gáfu tóndæmi af Barfly í beinni Aldrei séð annað eins: IceGuys seldi nítján þúsund miða Herra Hnetusmjör stoltur eftir tryllta afmælishelgi Samtalið órjúfanlegur hluti af sköpuninni Sjá meira
„Hamingjan er hugarástand sem er jafngilt hvort sem það eru skin eða skúrir“ „Lagið fjallar um hvernig það er í okkar höndum að hafa gaman af hlutum, sama þó að eitthvað leiðinlegt komi upp á,“ segir hljómsveitin Celebs, sem var að senda frá sér lagið Bongó, blús & næs. Lagið var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM957 í dag. 10. júní 2023 17:01
Lætur ekkert stoppa sig núna „Ég ætla bara að leggja allt til hliðar og setja alla orkuna mína í að geta gert það sem mig langar, sem er að verða tónlistarkona og leikkona,“ segir Eurovision farinn Diljá Pétursdóttir, sem sendi nýlega frá sér lagið Crazy. Lagið situr í tíunda sæti Íslenska listans á FM en blaðamaður ræddi við hana um lagið. 3. júní 2023 17:00
Finnska Eurovision stjarnan stefnir á toppinn Finnska Eurovision stjarnan Käärijä situr í öðru sæti Íslenska listans á FM í þessari viku með lagið Cha Cha Cha. Hann stekkur upp um sex sæti á milli vikna og stefnir ótrauður á toppinn. 27. maí 2023 17:01
Lærði söng hjá Frikka Dór og á nú hittara með honum Rapparinn Daniil situr í fjórða sæti Íslenska listans á FM með nýtt lag sem ber heitið Aleinn. Með honum á laginu er enginn annar en Friðrik Dór en Daniil var einungis níu ára gamall þegar hann kynntist Frikka, í gegnum söngtíma. 22. apríl 2023 17:00