Hiti að átján stigum sunnan heiða Atli Ísleifsson skrifar 6. júlí 2023 07:37 Fólk reynir að nýta sólardagana þegar þeir koma. Vísir/Vilhelm Lægð vestur af Skotlandi veldur því að norðaustlægir vindar verða ríkjandiá landinu í dag, en heldur austlægari á morgun.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði skýjað á norðan- og austanverðu landinu og sums staðar þokuloft eða súld, en léttskýjað suðvestan til. Hiti verður að átján stigum sunnan heiða í dag, en mun svalara úti við norður- og austurströndina. „Skil lægðarinnar nálgast seint á morgun og hvessir þá og fer að rigna á Suðausturlandi um kvöldið, en hlýnar ögn í veðri. Heggur hiti þá nærri 20 stigum í uppsveitum Suðurlands og jafnvel einnig á Vesturlandi. Hæg austlæg eða breytileg átt á laugardag, dálítil væta suðaustanlands til Austfjarða, annars bjart og hlýtt veður með hita yfir 20 stigum þegar best lætur,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Austan og norðaustan 5-10 m/s, en 10-15 allra syðst. Yfirleitt bjart með köflum, en skýjað austantil og sums staðar dálítil væta þar. Hvessir og fer að rigna á Suðausturlandi með kvöldinu. Hiti 8 til 19 stig, hlýjast suðvestanlands. Á laugardag: Austlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s og bjart með köflum, en hvassara og dálítil rigning suðaustanlands. Smáskúrir norðaustanlands um kvöldið. Hiti víða 13 til 20 stig, hlýjast inn til landsins. Á sunnudag: Norðaustan og austan 5-13 m/s og lítilsháttar rigning norðan- og austanlands og kólnar heldur á þeim slóðum. Áfram bjartviðri og hlýtt suðvestantil. Á mánudag og þriðjudag: Norðlægar áttir og væta með köflum, einkum fyrir austan. Fremur hlýtt í veðri á Suður- og Vesturlandi, en annars svalt. Á miðvikudag: Útlit fyrir hæga vinda, skýjað með köflum og hlýnandi veður víða um land allt.
Veður Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Sjá meira