Hér má heyra lagið:
Skemmtistaðarsleikur
„Lagið Dansandi í myrkri er samið og pródúserað af Hreini Bergs sem er betur þekktur sem Gúí. Lagið er mjög svona „horny at the club“ og erum við gríðarlega stoltir af afrakstrinum,“ segir Guðjón Smári og bætir við:
„Lagið er um augnablikið þegar maður er á klúbbnum með þessari einu stelpu sem maður vill og manni er alveg sama hvort fólk sé að horfa eða ekki. Hver hefur ekki verið á djamminu með einhverri skvísu og dottið í einn skemmtistaðarsleik í einhverju mökki? Það eru fleiri lög á leiðinni og eru þau öll voðalega horny og skemmtileg. Ég mæli með þessum lögum fyrir alla þá sem eru yfir meðallagi horny.“

Setti fyrst inn vitlaust lag
Guðjóni varð örlítið á þegar hann var að setja lagið inn á streymisveituna Spotify og áttaði sig blessunarlega á því stuttu síðar.
„Þegar ég sendi inn lagið þá fattaði ég ekki að ég var að senda inn demo-ið sem Gúi sendi mér þegar hann var að bjóða mér að taka þátt í verkefninu. Ég var í London að fagna útgáfunni þegar mér var bent á það að vitlaust lag væri í kerfinu og djöfull fékk ég mikið kvíðakast.
Sem betur fer hafði ég samband við útgáfuna og rétta lagið mætti og skein sínu skærasta á sunnudeginum. Annar síngúll kemur innan skamms og mögulega plata.“
Idolið frábært upphaf
Guðjón Smári vakti athygli sem þátttakandi í Idolinu í vetur og segist hann búa vel að reynslunni.
„Ég mæli gríðarlega mikið með að taka þátt í Idolinu. Sjálfur var ég alltaf að bíða eftir rétta tækifærinu til þess að koma mér á framfæri og Idolið var svarið hjá mér.
Það þýðir heldur ekki það að fólk þurfi endilega að vinna, fólk þarf ekki einu sinni að komast í live showið því fullt af góðum vinum mínum sem ég kynntist í Idolinu eru að gera frábæra hluti og það hjálpaði þeim að hafa verið sýnilegur í Idolinu, það hjálpar fólki að tengja andlit við nafn. Þetta er líka frábær vettvangur til að kynnast skemmtilegu fólki sem hefur áhuga á tónlist.
Reynslan mín við að taka þátt í Idolinu var bæði svo gríðarlega skemmtileg og lærdómsrík. Ég fékk góða leiðsögn frá framleiðendunum sem halda svo sjúklega vel um alla keppendurnar og svo fáum við líka alls kyns þjálfun. Það er raddþjálfari á staðnum sem kennir manni að beita röddinni, sviðstjóri sem hjálpar manni að hanna atriðin og svo skemmir ekki að hafa heimsklassa hljómsveit sem stækka atriðin gríðarlega.“

Vináttan ómetanleg
Hann segir sérstaklega standa upp úr hvað hann kynntist mikið af góðu fólki.
„Mér þykir gríðarlega vænt um Idolið og allt glæsilega fólkið sem ég kynntist. Við sem komumst í topp átta erum eins og lítil fjölskylda, heyrum reglulega í hvoru öðru og er þetta vinátta sem ég er gríðarlega þakklátur fyrir,“ segir Guðjón að lokum.
Emmsjé Gauti og Þjóðhátíðarlagið á toppnum
Efstu þrjú lög Íslenska listans á FM eiga það öll sameiginlegt að vera íslenskt í þessari viku. Emmsjé Gauti situr staðfastur á toppi Íslenska listans á FM með Þjóðhátíðarlagið Þúsund hjörtu og strákasveitin Iceguys fylgir fast á eftir með lagið Rúlletta. Þá situr Diljá í þriðja sætinu með lagið Crazy.
Íslenski listinn er fluttur alla laugardaga á FM 957 á milli klukkan 14:00 og 16:00.
Lög Íslenska listans:
Íslenski listinn á Spotify: