Lífið

Ísa­bella keppir í kvöld í hand­máluðum þjóð­búning

Íris Hauksdóttir skrifar
Þjóðbúningurinn sem Ísabella klæðist í kvöld er handmálaður með mynd af Hallgrímskirkju og íslensku landslagi.
Þjóðbúningurinn sem Ísabella klæðist í kvöld er handmálaður með mynd af Hallgrímskirkju og íslensku landslagi. aðsend

Ísabella Þorvaldsdóttir keppir í kvöld í Miss Supranational en hún stóð uppi sem sigurvegari sem Miss Supranational Iceland á síðasta ári. Keppnin fer fram í Póllandi og segist Ísabella gríðarlega spennt fyrir kvöldinu.

Ísabellu hafði dreymt um að verða fegurðardrottning frá því hún var þriggja ára en sá draumur rættist þegar hún hampaði titilinum Miss Supranational Iceland á síðasta ári. Keppnin fer fram í kvöld og var Ísabella stödd á lokaæfingunni þegar blaðakona náði tali af henni.

Ísabella er glæsilegur fulltrúi Íslands.aðsend

„Við erum á síðustu æfingunni okkar og ég get ekki beðið eftir kvöldinu. Við erum búnar að æfa saman í þrjár vikur og það er búið að vera yndislegur tími, þökk sé þessum stelpum. Við erum allar orðnar systur og þær verða vinkonur mínar alla mína ævi. Margar þeirra stefna á að koma til Íslands og ég sömuleiðis spennt að heimsækja þær til sinna landa.“

Kjóllinn táknar Ísland

Ísabella viðurkennir þó að undirbúningsferlið hafi reynst krefjandi. „Þetta er búið að vera mun meiri keyrsla en ég átti von á. Við vöknum oft fimm á morgnanna og erum ekki komnar heim fyrr en eftir miðnætti. En þetta er ótrúlega skemmtilegt. 

Uppáhalds minningarnar mínar eru samt þegar við erum allar búnar á æfingum og fáum okkur pizzu saman í náttfötunum. Það er náttúrulega mjög stelpulegt og sætt.“ 

Kjóllinn sem Ísabella klæðist í kvöld vekur skiljanlega mikla eftirtekt en hann er hannaður af Kirsten Regalado og táknar Ísland.

Klippa: Ísabella sýnir Íslands-kjólinn

„Kjóllinn er handmálaður með mynd af Hallgrímskirkju framan á og íslenskri náttúru allt í kring. Ég gæti ekki verið ánægðari með hann.“

Ísabella segist óendanlega þakklát öllum þeim sem staðið hafa við bakið á sér í ferlinu.aðsend

Ísabella hvetur alla til að fylgjast með keppninni í kvöld. „Ég mun segja líffæragjafa söguna mína og hvernig mitt markmið í lífinu er að elta drauma sína. Þetta er minn stærsti draumur að rætast. Ég er svo óendanlega þakklát öllum sem hafa staðið á bakvið mig og ég get ekki beðið með að vinna meira með þessu fólki í framtíðinni. En svo er ég líka mjög spennt að krýna næstu drottningu.“

Áhugasamir geta fylgst með keppninni hér


Tengdar fréttir

Lét örið ekki stöðva sig að láta drauminn rætast

Ísabella Þorvaldsdóttir var einungis þriggja ára þegar hún gekk undir líffæraígræðslu. Ísabella sem fæddist með óvirk nýru þáði líffæragjöf frá föður sínum og er hún yngsti einstaklingurinn hér á landi til að gangast undir slíka aðgerð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.