Einn stærsti hluthafinn seldi um fjórðung bréfa sinna í Controlant
![Vöxtur Controlant, sem þróar og framleiðir vöktunarlausnir fyrir lyf og heilbrigðisvörur, hefur verið afar ör á allra síðustu árum. Félagið áætlar að velta nærri þúsund milljónum innan fárra ára.](https://www.visir.is/i/74AD3DFD0B93BF467C90B7FCCAA3127E4B3934D3E6EAFF90D11AE6FF509DE994_713x0.jpg)
Fjárfestingafélagið Kaskur, sem hefur verið á meðal stærstu hluthafa Controlant frá árinu 2017 og er í eigu Inga Guðjónssonar, losaði um meira en fjórðung alls eignarhlutar síns í hinu ört vaxandi íslenska hátæknifyrirtæki á árinu 2022. Áætla má að söluandvirði bréfanna hafi verið samanlagt um liðlega einn milljarður króna.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/10CB8DD5FD439D27E5E0699127D0834599E5E3BAE4FC7EFCD14555548937A295_308x200.jpg)
Controlant í „stöðugum“ viðræðum við fjárfesta um möguleg kaup á stórum hlut
Viðræður standa stöðugt yfir við sum af stærstu sjóðastýringarfyrirtækjum heims um möguleg kaup á ráðandi hlut í Controlant en íslenska hátæknifyrirtækið hefur engu að síður gefið út að það hyggist sækja sér aukið fé á komandi vikum til að brúa fjárþörf þess til skamms tíma. Í hópi stærri hluthafa Controlant gætir nokkurra efasemda um það verði gert með hlutafjárútboði en félagið, sem er í dag metið á nærri 100 milljarða, segist ekki vera búið að ákveða hvort það verði niðurstaðan eða sótt fjármagn með annars konar hætti.
![](https://www.visir.is/i/5D7738B4FA74A19DA10E2BDBB63534E38CC7561443AAE4154D3B48E5AB7CE2AB_308x200.jpg)
Controlant fengið 24 milljarða greidda fyrirfram frá lyfjarisanum Pfizer
Íslenska hátæknifyrirtækið Controlant, sem hefur gegnt lykilhlutverki í dreifingu og geymslu bóluefnaskammta gegn Covid-19 fyrir Pfizer, er með samkomulag við bandaríska lyfjarisann sem hefur tryggt félaginu verulegar fyrirfram innheimtar tekjur. Í árslok 2021 námu slíkar tekjur tengdar samningum við Pfizer um 174 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 24 milljarða íslenskra króna, og koma þær að mestu inn í reksturinn á þessu ári og því næsta.