„Ástæða þess að Neistinn varð fyrir valinu er sá að einn keppenda, Dagný Ósk Garðarsdóttir, hefur sterkar taugar til samtakanna,“ segir Manuela Ósk Harðardóttir framkvæmdarstýra keppninnar og heldur áfram. „Litla systir hennar lést árið 2014 úr sjaldgæfum hjartagalla, fjórtán mánaða gömul. Þetta er auðvitað gríðarlegur fjölskylduharmleikur og eftir að hafa heyrt söguna hennar var aldrei nein spurning um að þetta væri góðgerðarstarfið sem við vildum stefna á að styrkja í ár.“
Viðburðurinn verður á Pablo Disco Bar kl 18.30 á miðvikudaginn og hafa stúlkurnar safnað veglegum vinningum fyrir góðvild fjölmargra fyrirtækja sem styðja þetta framtak stúlknanna.
Bingóspjaldið kostar 1.000 kr - en fyrir þá sem vilja leggja málefninu lið að öðru leiti er beint á reikningsnúmerið: 0370-26-531005 og kennitöluna: 531021-1260.
Keppnin um titilinn Ungfrú Ísland fer fram í Gamla Bíó þann 16.ágúst næstkomandi. Þar mun Hrafnhildur Haraldsdóttir krýna arftaka sinn og ein þeirra átján stúlkna sem keppa hefja ævintýralegt ár sem fulltrúi Íslands í Miss Universe.