Von á allhvössum vindi norðanvestantil Atli Ísleifsson skrifar 5. september 2023 07:23 Gera má ráð fyrir að hiti verði tíu til nítján stig yfir daginn. Vísir/RAX Veðurstofan gerir ráð fyrir sunnan- og suðvestanátt á landinu í dag, yfirleitt golu, kalda eða stinningskalda, en að á norðvestanverðu landinu séu líkur á allhvössum eða hvössum vindstrengjum.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það verði skýjað vestantil á landinu og þegar líði á daginn megi búast við dálítilli vætu á þeim slóðum. Á austurhelmingi landsins verði þó yfirleitt þurrt og bjart veður. Gera má ráð fyrir að hiti verði tíu til nítján stig yfir daginn, hlýjast norðaustanlands. „Á morgun dregur smám saman úr vindi og það verður væta með köflum víða um land, en þurrt að kalla á Norður- og Austurlandi fram eftir degi. Annað kvöld verður svo komin samfelld rigning sunnan- og vestanlands. Áfram milt í veðri,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Suðlæg átt 5-13 m/s og væta með köflum, en þurrt að kalla á Norður- og Austurlandi fram eftir degi. Samfelld rigning á sunnanverðu landinu undir kvöld. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast norðaustantil. Á fimmtudag: Vestlæg eða breytileg átt 3-10 og rigning eða súld með köflum. Hiti 9 til 17 stig, mildast á Austurlandi. Á föstudag: Sunnan og suðvestan 10-18 og víða rigning, en úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast norðaustantil. Á laugardag og sunnudag: Breytileg átt og allvíða skúrir. Hiti 5 til 11 stig. Á mánudag: Norðlæg átt og dálitlar skúrir, en þurrt að kalla sunnanlands. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Sjá meira