Úrhellisrigning í dag og stormur á morgun Atli Ísleifsson skrifar 9. október 2023 07:20 Úrkoman verður talsverð eða mikil suðvestanlands. Vísir/Vilhelm Veðrið lætur vel á sér kræla næstu daga og má gera ráð fyrir mikilli rigningu í dag og norðan stormi á morgun og á miðvikudag. Gular veðurviðvaranir eru í gildi í dag á suðvestanverðu og sunnanverðu landinu í dag vegna úrhellisrigningar og sömuleiðis hefur verið gefin út gul veðurviðvörun fyrir allt landið vegna norðanstormsins sem gengur á landið á morgun.
Á vef Veðurstofunnar segir að spáð sé suðvestan tíu til fimmtán metrum á sekúndu í dag og rigningu. Má gera ráð fyrir að úrkoman verði talsverð eða mikil suðvestanlands. Um sexleytið í morgun höfðu þegar mælst 20 millimetra úrkoma á Korpu á höfuðborgarsvæðinu og er gott að huga að niðurföllum til að forðast vatnstjón. Það mun svo rofa til seinnipartinn, fyrst vestanlands og lægir svo heldur um kvöldið. Hiti verður á bilinu þrjú til tíu stig, hlýjast á Suðausturlandi. „Svo gengur í norðan 15-25 m/s á morgun, hvassast við norðurströndina og einnig í vindstrengjum á Suðausturlandi síðdegis. Rigning eða slydda um norðanvert landið og jafnvel snjókoma til fjalla. Það verður hins vegar yfirleitt bjart og þurrt sunnan heiða. Hiti á morgun 2 til 8 stig, hlýjast suðaustanlands. Aðfaranótt miðvikudags hvessir enn á Suðausturlandi og eru líkur á mjög snörpum vindhviðum þar að næturlagi, einkum við og austan Öræfa. Hægt minnkandi norðanátt á miðvikudag og dregur úr ofankomu fyrir norðan en léttskýjað sunnanlands. Kólnandi veður, hiti nálægt frostmarki norðanlands en allt að 6 stigum við suðurströndina,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Gengur í norðan og norðvestan 15-25 m/s, en allt að 30 m/s með mjög snörpum vindhviðum sums staðar á Suðausturlandi síðdegis. Rigning eða slydda, en snjókoma til fjalla. Úrkomulítið sunnan heiða. Hiti 0 til 7 stig, mildast við suðurströndina. Á miðvikudag: Norðan- og norðvestan 15-23 m/s og slydda eða rigning og síðar snjókoma norðan- og austanlands, en skýjað með köflum í öðrum landshlutum. Dregur talsvert úr vindi og rofar til seinnipartinn en dálítil rigning suðvestantil um kvöldið. Hiti kringum frostmark fyrir norðan en allt að 5 stigum syðst á landinu. Á fimmtudag: Norðlæg átt 10-18. Rigning á sunnanverðu landinu, en slydda eða snjókoma norðanlands. Bætir í úrkomu norðantil seinnipartinn en styttir upp sunnan heiða. Hiti víða 0 til 4 stig. Á föstudag: Norðanátt og snjókoma eða slydda, en lengst af þurrt sunnan heiða. Frost 0 til 5 stig en allt að 4 stigum við austur- og suðurströndina. Á laugardag: Minnkandi norðanátt og dregur úr ofankomu fyrir norðan. Bjart með köflum sunnanlands. Frost um allt land. Á sunnudag: Útlit fyrir vestlæga átt. Snjókoma og síðan rigning eða slydda með hlýnandi veðri vestantil en þurrt og kalt fyrir austan.
Veður Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira